virðisaukaskattur.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna í þessu máli. Í því umhverfi sem við búum í í dag eru margir sem eru með lítil fyrirtæki eða annað í hjáverkum. Þetta er kannski ekki það sem fólk hefur lifibrauð sitt af heldur er verið að prófa sig áfram. Það er meira að segja orðið mjög algengt að konur stofni lítil fyrirtæki til að bjóða upp á ákveðnar vörur og þekkingu og ýmislegt slíkt. Við þurfum að halda vel utan um fólk sem er að byrja með slíkan rekstur. Það er náttúrlega skiljanlegt að ef allt slær í gegn og þú selur fyrir 100 milljónir þá á náttúrlega að skattleggja það og allt það. En það er mjög góð hugmynd, sem kemur hér fram, að hækka þetta. Mig langaði að spyrja hv. þingmann út í það hvort ekki hefði verið raunhæfara að breyta 3. tölulið 4. gr. laganna á þann veg að þessi upphæð væri einfaldlega tengd við vísitölu neysluverðs. Mér finnst vera allt of mikið í lögum hér — við erum endalaust að koma hingað upp og framkvæma einhverjar breytingar á einni grein til að hækka einhverja tölu. Af hverju getum við ekki bara fest þetta við eitthvað eins og vísitölu neysluverðs og séð til þess að við þurfum ekki að koma hérna eftir fimm ár eða tíu ár og gera þetta aftur?