155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

virðisaukaskattur.

50. mál
[11:29]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir andsvarið. Ef ég skil hv. þingmann rétt þá setur hún sig ekki upp á móti því að tengja þennan hlut við vísitölu neysluverðs. Mín seinni spurning er í rauninni sú hvort það sé ekki einmitt mjög viturlegt að í stað þess að vera með bandorma hingað og þangað, til að hækka einhverjar einfaldar tölur upp um eitthvað — hvort við eigum ekki miklu frekar að reyna að leggja okkur fram um að tengja þessa hluti við eitthvað eins og vísitöluna. Þá kemur kannski líka hvati fyrir ríkið og ríkisstjórnina og aðra sem eru við stjórnvölinn að reyna að halda vísitölu neysluverðs niðri, þ.e. að reyna að halda verðbólgunni niðri. Ef verðbólgan er há þá hefur það áhrif á að þessir hlutir hækka. Við erum ekki bara að tala um veltumörk fyrir virðisauka. Það er ýmislegt annað sem við erum að hækka, frítekjumörk og ýmislegt annað. Hv. þm. Inga Sæland flytur einmitt alltaf nokkur frumvörp á hverju ári til að leggja til hækkanir á frítekjumörkum og viðmiðum og öllum þessum hlutum. Ég bara spyr: Þurfum við að vera með öll þessi frumvörp um að hækka? Af hverju getum við ekki bara tengt þessa hluti og þá aðeins minnkað pappírsvinnu við að hækka þetta og verða skilvirkari. Ég veit að Sjálfstæðisflokkurinn talar alltaf fyrir mikilli skilvirkni og þurfum við ekki líka að hafa hana hér á þinginu?