155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.

316. mál
[11:22]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svar. Já, það hefur mikið vatn runnið til sjávar og við erum í raun og veru að sjá gosin fara stækkandi og hættuna aukast. Nú er talað um að gosin stækki um allt að 30% við hvern atburð og síðasta gos var það stærsta sem hefur komið og næsta verður þá væntanlega stærra og þá er spurningin: Duga varnargarðarnir? Við fórum í kjördæmavikunni upp á varnargarðana og sáum þessi mannvirki og þetta eru rosaleg mannvirki, það verður bara að segjast eins og er. Þetta er bara ótrúlegt afrek þessara manna sem hafa byggt þetta upp, gröfukarlanna, sem við munum eftir að horft á í beinni útsendingu hlaupa við að bjarga tækjunum sínum frá því að lenda undir hrauni. Ég held að það þurfi að hengja fálkaorðuna á alla þessa menn.

Það segir hér í 2. kafla greinargerðar að ef við ætlum að verja Reykjanesbrautina þá þurfum við að byggja varnargarð sem gæti verið 4–6 metrar á hæð og allt að 900 metra langur. Síðan segir: „Kostnaður við byggingu slíks varnargarðs yrði því umtalsverður.“ Hafandi alla þessa reynslu af byggingu varnargarða núna, hvers vegna er ekki hægt að setja verðmiða á þetta þannig að við vitum sirka hvað við værum að fara að gera? Af hverju er bara verið að segja að þetta sé umtalsvert þegar við erum búin að byggja varnargarða sem eru tugir metra, hundruð metra? Kostnaðurinn við þá held ég að sé kominn í 10 milljarða. Hvers vegna var ekki hægt að setja í frumvarpið kostnað um það bil af því að byggja 4–6 metra háan varnargarð sem væri 900 metra langur?