vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og mig langar kannski að fá að klára það sem ég náði ekki vegna þess að tímanum lauk áðan. Ég vil nefna að þetta sérstaka gjald sem lagt var á alla landsmenn til að standa straum af uppbyggingu varnargarða á Reykjanesi og sem rennur sitt skeið á enda í lok árs 2026, var hugsað fyrir þessa fyrstu framkvæmd sem þá var metin á milli 2 og 3 milljarða. Núna er þessi kostnaður við uppbyggingu varnargarða kominn í um 10 milljarða þannig að það er ljóst að íslenska þjóðin er að taka á sig verulegan kostnað sem kemur þá ekki fram með þessu beina gjaldi heldur í sköttum okkar. Kostnað við þessar hamfarir sem nú orðnar eru á Reykjanesi má meta á hátt í 100 milljarða og vitaskuld hefur það áhrif á íslenskt efnahagslíf og íslenskt samfélag. Ég vil bara fá að ítreka það hér.
Hv. þingmaður nefnir að við gætum fengið núna hraunflæði sem getur ógnað Reykjanesbrautinni og hugsanlega byggð í Vogum. Það er núna verið að hanna mannvirki sem er, eins og kemur fram hér í greinargerð, gríðarlegt mannvirki, tæpur kílómetri að lengd og allt að 6 metrar á hæð og þetta er verulegur kostnaður. Þessi verkefni eru í stöðugri þróun og sem betur fer þá vita okkar sérfræðingar alltaf betur og betur hver kostnaðurinn er. Ég vil ekki með einhverjum óábyrgum hætti nefna hér einhverja tölu en kostnaðurinn er umtalsverður.