vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að flytja frumvarp sem er mjög mikilvægt að fari hratt og vel í gegnum þingið vegna þess að við erum enn þá bara í miðjum atburðum þegar kemur að Reykjanesinu. Mig langaði að ræða við hæstv. ráðherra og spyrja um þennan varnargarð til að verja Reykjanesbrautina. Nú hef ég heyrt að tillögur um hann og hönnun hafi legið fyrir um nokkurra mánaða skeið en að engin ákvörðun hafi verið tekin um það enn þá hvort það eigi að byggja hann. Það er vert að hafa í huga að þó svo að það sé umtalsverður kostnaður við að byggja þennan varnargarð þá er það þannig að ef Reykjanesbrautin lokast þá munu þeir 12.000–18.000 bílar sem keyra hana á hverjum degi ekki komast fram og til baka. Þetta hefði gífurleg áhrif á allt millilandaflug vegna þess að þá væri ekki hægt að koma farþegum eða áhöfn eða starfsfólki fram og til baka. Þegar Reykjanesbrautin lokaðist vegna veðurs í tvo daga þá áætluðu flugfélögin að tap þeirra væri um 2 milljarðar á tveimur dögum. Þær tölur sem ég hef heyrt um þennan varnargarð eru einhvers staðar í kringum hálfan milljarð sem þýðir að það er svona eins og hálfur dagur. Ég veit að það er oft erfitt fyrir fyrir stjórnmálamenn að taka ákvarðanir um eitthvað sem ekki er víst að við þurfum á að halda en ég held að hér sé mikilvægt að við byrjum þessa varnargarðagerð sem fyrst því að ef gosið kemur upp mun norðar en núna þá er óvíst hversu langan tíma við höfum. Ég myndi gjarnan vilja heyra í hæstv. ráðherra um þau plön.