vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningu sem beint var til mín. Hv. þingmaður nefnir hér að það hafi legið fyrir í nokkurn tíma hönnun og tillögur um varnargarða við Reykjanesbraut. Ég vil bara árétta að það hefur engin tillaga borist ráðherra frá ríkislögreglustjóra. Það hefur engin tillaga borist ráðherra. Hins vegar er mér kunnugt um að verið er að hanna þessi mannvirki. Það er verið að teikna þau og það er verið að horfa á líkön, möguleg hraunflæðilíkön og hvernig uppbyggingu á varnarmannvirkjum til að verja þessa mikilvægu innviði sé best fyrir komið. Það er alveg ljóst að mannvirkið til að gegna þessu hlutverki verður stórt, það verður umfangsmikið og þar með verður kostnaðurinn umtalsverður, eins og tekið er fram í greinargerðinni.
Það er líka ljóst að Reykjanesið er gríðarlega mikilvægt í öllu efnahagslegu tilliti hér á Íslandi. Þarna er 30.000 manna byggð og þær varnaraðgerðir sem við höfum farið í og allar þær ákvarðanir sem ég hef tekið til að verja bæði byggðina í Grindavík og einnig orkuverið — ég vil árétta það að þær hafa komið í veg fyrir stórkostlegt tjón á Reykjanesi. Við erum að upplifa óvenjulega tíma og vegna þess höfum við brugðist við með óvenjulegum aðgerðum. Það er auðvitað (Forseti hringir.) mikilvægt að hafa í huga að í öllum þessum aðgerðum þá höfum við kippt úr sambandi (Forseti hringir.) hefðbundinni málsmeðferð og það er vitaskuld mjög óvenjulegt.