155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[11:23]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Hér er um nokkuð sérstakt frumvarp að ræða vegna þess að þegar málið komst loksins til almennilegrar vinnslu innan nefndarinnar þá var engin ríkisstjórn eða ríkisstjórnarmeirihluti á bak við frumvarpið. Það þýddi að við í efnahags- og viðskiptanefnd þurftum að fara að vinna aðeins öðruvísi heldur en tíðkast hefur undanfarin ár, þ.e. við þurftum að ná saman um þau mál sem í frumvarpinu eru. Mig langar að þakka öllum þeim hv. þingmönnum sem eru með mér í nefndinni vegna þess að við tókum öll þessi verkefni af mikilli festu og ég veit að hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir hefur þurft að teygja hlutina ansi mikið til þess að geta náð samkomulagi þvert á flokka. Það eru aldrei allir sáttir með allt þegar ná þarf slíku samkomulagi en við getum verið sátt við það að við gátum afgreitt þetta og það eru hópar innan samfélagsins sem munu njóta góðs af því að við náðum saman um þessi mál. Það væri óskandi að við lærðum af þessu og gerðum það oftar að vinna svona þvert á flokka, jafnvel þegar ríkisstjórnarmeirihluti er til staðar, vegna þess að úr því verður betri löggjöf og betri stjórn á landinu.