landlæknir og lýðheilsa o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir hennar yfirferð á þessu máli sem ég þykist þó kannast við þar sem fyrrum heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, flutti þetta mál á síðasta þingi og vann að þessu. Þetta er mikilvægt mál og það er mikilvægt að tryggja betri yfirsýn yfir heilbrigðisþjónustuna og auka gæði hennar og vissulega bæta aðgengi að gögnum sem geta þá líka hjálpað okkur við stefnumótun og vísindarannsóknir til framtíðar. En þetta er vissulega stórt skref sem er verið að stíga hér í átt að miðlægri skráningu viðkvæmra persónuupplýsinga og það er mikilvægt að við vöndum til verka. Þá kemur m.a. hugleiðingin varðandi þessi skýru mörk um aðgengi að gögnunum, hvernig við getum tryggt að sjúklingar upplifi öryggi og traust í þessu kerfi og hvernig við getum verið viss um að gögnin verði nýtt í tilætluðum tilgangi. Ég styð markmið frumvarpsins heils hugar en vil tryggja að varnaglarnir séu nægilega traustir.
Hæstv. ráðherra fór aðeins yfir það áðan en það væri gott að hann gæti farið aðeins dýpra í það hvernig við getum haft öflugt eftirlitskerfi og skýrar reglur um aðgang og gagnavernd þannig að það gagnist bæði sjúklingnum og eins líka vísindunum og við fáum þá betri yfirsýn yfir heilsufar þjóðarinnar sem er afar mikilvægt. En við finnum það líka, sem notum þetta kerfi, að persónuverndin getur gagnast okkur en hún getur líka stundum verið til ógagns þegar við þurfum að fá upplýsingar sjálf sem er ekki heimilt. Ef hæstv. ráðherra gæti farið aðeins betur yfir þetta væri það til bóta.