landlæknir og lýðheilsa o.fl.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir þessa ábendingu um að meta árangurinn af þessum breytingum. Það er engin slík úttekt fyrirhuguð en það má alveg hugsa sér það. Það er auðvitað þegar afar góð reynsla af því að halda heilbrigðisskrár. Þær hafa verið haldnar frá árinu 2007 og það eru fá lönd sem eiga eins góð gagnasöfn. Varðandi gæðaskrárnar höfum við mjög góðar fyrirmyndir erlendis frá þar sem þær þykja lykilatriði í því að þróa þjónustu og meðferð áfram og hefur verið kallað mjög eftir þeim frá veitendum þjónustu.
Mér finnst þessi tillaga þingmannsins allrar athygli verð og skal íhuga hana. Ég ráðlegg þingmanninum líka að koma þessu á framfæri þegar málið verður tekið fyrir í nefnd.