156. löggjafarþing — 3. fundur,  11. feb. 2025.

siglingavernd.

7. mál
[19:08]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um siglingavernd nr. 50/2004. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á tveimur ákvæðum gildandi laga. Ætlunin er að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um ófullnægjandi innleiðingu Evrópureglna, sem fram komu í úttekt stofnunarinnar á hafnaraðstöðu hér á landi. Breytingarnar varða framkvæmd áhættumats fyrir hafnaraðstöðu.   Í núgildandi lögum er gert ráð fyrir að verndarfulltrúi hafnaraðstöðu geti framkvæmt slíkt áhættumat, en skv. Evrópureglugerð (EB) nr. 725/2004, um vernd skipa og hafnaraðstöðu, skal áhættumatið aðeins framkvæmt af hlutaðeigandi stjórnvaldi eða viðurkenndum verndaraðila. Það sem vantar hér inn í er að það sé framkvæmt af hlutaðeigandi stjórnvaldi.

Til að bregðast við þessu misræmi er lögð til breyting á orðalagi tveggja ákvæða, þ.e. á 3. gr. og 4. gr. gildandi laga, þannig að skýrt sé að Samgöngustofa, sem er hlutaðeigandi stjórnvald, beri ábyrgð á að staðfesta áhættumat útgerða fyrir íslensk skip og hafnir, auk þess að framkvæma áhættumatið.   Þær breytingar sem lagðar eru til, eru í samræmi við verklag sem þegar er viðhaft hjá Samgöngustofu við framkvæmd áhættumats fyrir hafnaraðstöðu og hafa ekki áhrif umfram það.

Verði frumvarpið samþykkt má gera ráð fyrir að máli Eftirlitsstofnunar EFTA vegna ófullnægjandi innleiðingar Evrópureglna verði lokað. Ekki er gert ráð fyrir að breytingarnar hafi í för með sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð eða sveitarfélög.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni umræðu þessari vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og til 2. umræðu.