aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni kærlega fyrir bæði að rifja upp söguna og fyrir að lýsa yfir stuðningi við þetta mikilvæga mál. Gott að vita að hér er mikil þekking þegar kemur að sýklalyfjanotkun í dýrum því það er auðvitað ekki á málefnasviði þeirrar sem hér stendur. Þetta er auðvitað gríðarlega mikilvægt og mjög mikilvægt að setja stefnu. Ég tel nú að það sé betra að hafa hana þó að það sé kannski ekki búið að fjármagna áætlunina til fulls. En hitt væri betra og ég hef átt um þetta samtal við hæstv. fjármálaráðherra og hann skilur algerlega að það er dýrara að aðhafast ekki. Við höfum líka átt samtal um hvernig verklagið ætti að vera til framtíðar því það munu koma fleiri slíkar og jafn mikilvægar áætlanir. Boltinn er því hjá hæstv. fjármálaráðherra hvað það varðar.
Þingmaðurinn nefndi ráðstefnu. Það hefur greinilega gleymst að bjóða landlækni á þá ráðstefnu en það hefði verið ánægjulegt að fá þá hlið að málum. Ég tel að við þurfum að auka eftirlit með sýklalyfjanotkun og bakteríum í kjöti. Það á líka við hér innan lands eins og nýlegt dæmi um mjög alvarlega matarsýkingu sýnir. Ég hef einmitt tekið það upp við atvinnuvegaráðherra að bæta þar úr.