ráðstöfun útvarpsgjalds.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir þessa fyrirspurn. Jú, það er rétt, það er nú þannig að þessa þjónustu við sjófarendur ætlaði Ríkisútvarpið að leggja niður í sparnaðarskyni. Ef það eru einhverjir sem ættu að hafa aðgang að fjölmiðlum og að hafa aðgang að Ríkisútvarpinu og RÚV þá eru það sjófarendur. Þessa þjónustu stóð til að leggja niður í sparnaðarskyni en vegna mikilla mótmæla var því snúið við þannig að þessi þjónusta er enn þá í gangi. En þetta lýsir kannski svolítið, af því að við vorum að tala um öryggishlutverk, forgangsröðun stofnunarinnar. Þegar kemur að því hverja á að þjónusta og vali á efni og öðru þá er það svolítið lýsandi að það hafi verið í forgangi að skera þessa þjónustu niður.