breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir andsvarið. Já, það blasir við að þau eru miklu þyngri á vogarskálunum, þau sjónarmið sem snúa að vernd eins og verklagið hefur verið núna um alllanga hríð heldur en samfélagslegu áhrifin. Það held ég að sé ekki hægt að velkjast í neinum vafa um og ég held að það sé ekki skynsamlegt. Við þurfum að meta þetta einhvern veginn þannig að jafnvægis sé gætt og ég held að upprunalega regluverkið miði við það og geri ráð fyrir því. Síðan höfum við einhvern veginn villst af leið í gegnum árin og eflaust hafa ráðherrar lagt sitt lóð á vogarskálarnar til að kannski ýta vigtinni í þá átt sem viðkomandi þótti henta. En við verðum að komast á betri stað með þetta. Ef við verðum föst þar sem við höfum verið undanfarin ár og kjörtímabil þá er rammaáætlunarferlið ekki á vetur setjandi að mínu mati.
Varðandi það sem hv. þingmaður nefndi, ég greip ekki enska nafnið á því, sem sagt þetta fyrirkomulag að það þurfi að rökstyðja sérstaklega vilji menn koma í veg fyrir virkjun þá er þetta auðvitað — oft er nú flaggað hugtakinu forréttindablinda í umræðunni hér á Íslandi. Ef það er einhver forréttindablinda sem við Íslendingar erum slegnir þá er það væntanlega hvað við virðumst meta lítið þetta mikla aðgengi að grænni endurnýjanlegri orku sem flestar þjóðir myndu gefa mikið fyrir að hafa aðgang að. Mér finnst við hafa því miður verið að sólunda þeim tækifærum um langa hríð sem kemur niður á verðmætasköpun og þróun samfélagsins og getu okkar til að styðja við velferðarkerfið enn þá meira heldur en við gerum í dag og þar fram eftir götunum. Þannig að án þess að ég þekki það þá slær þetta mig ágætlega og þetta er auðvitað það sem er að gerast alls staðar í Evrópu. Það er verið að gera allt sem nokkur kostur er til að ýta undir græna rafmagnsframleiðslu eða græna orkuframleiðslu með þeim ráðum sem tiltæk eru.