156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

51. mál
[17:51]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Isaksen) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil nú byrja á að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir hans tölu hér og eins líka stuðninginn við þetta mál. Það er rétt að ég er búin að vera að hlaupa hérna milli þingmanna til að fá þá á þetta mikilvæga mál. Á síðasta þingvetri var einmitt allur þingheimur á þessu máli fyrir utan auðvitað ráðherra. Það náðist langleiðina að þessu sinni, ekki alveg en samt sem áður þvert á flokka og það er það sem skiptir máli. Mér þykir mjög vænt um þennan stuðning sem fylgir þessu máli.

Bara aðeins til að bregðast við máli hv. þingmanns þá er ég alveg sammála því að þessi tölfræði í kringum þetta er erfið. Það er erfitt að greina þetta og það er einmitt hluti af þessari þingsályktunatillögu sem gengur út á það. Það er rétt að þetta er í rauninni fjallað um sem viðbragð við þessu öllu saman, sem hv. þingmaður fór bara mjög vel yfir í sinni ræðu. En þetta er ekki bara tala á blaði. Eitt andlát, eins og við höfum talað um hér, snertir fjölda fólks, 135 og jafnvel fleiri. Þetta hefur lamandi áhrif, jafnvel á heilu samfélögin, og ef við getum gert eitthvað til að hjálpa til í þessum málum þá eigum við að gera það. Ég fagna því að ríkisstjórnin sé að setja geðheilbrigðismálin í forgang og styð það heils hugar. En mig langar að spyrja hv. þingmann, því að ég veit að hann brennur einmitt svolítið fyrir þessum málum og þekkir vel til: Hvaða aðgerðum og úrræðum er hægt að koma á framfæri með betri hætti en við erum að gera í dag? Er eitthvað sem við erum ekki að gera sem gæti hjálpað til í tengslum við ópíóíðafaraldurinn og fleira sem er í gangi núna, þennan fíknisjúkdóm?