156. löggjafarþing — 11. fundur,  5. mars 2025.

rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.

51. mál
[17:57]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla bara að taka undir það sem hv. þingmaður er að nefna hérna. Við erum einmitt rosalega oft að glíma við afleiðingar en gerum kannski minna af því að greina orsakir og það allt saman. Þetta er auðvitað ofsalega flókið. Ég vil nú hafa þá trú að við séum öll að reyna að gera okkar besta og mér finnst mál hafa þokast í rétta átt þegar kemur að þessu. Ég get alveg sagt það að ég ber miklar vonir til þess sem hæstv. heilbrigðisráðherra ætlar að gera á kjörtímabilinu. Það er, eins og ég nefndi í ræðunni minni, síðan líka að hluta til byggt á þeirri vinnu sem fór fram á síðasta kjörtímabili þar sem ég veit að hæstv. fyrrverandi heilbrigðisráðherra var mjög áhugasamur um þennan málaflokk og lagði margt gott inn í púkkið, heldur betur. Þannig að já, ég tek undir það að ég held að við eigum að hugsa um þetta svolítið þverpólitískt eins og mörg önnur mál.

Sumt af þessu er auðvitað viðkvæmt. Það eru sumir sem vilja bregðast við vandanum með því að ganga lengra, t.d. með því að lögleiða vímuefni. Menn eru ekkert alveg sammála um afglæpavæðingu og þess háttar. Það eru alveg svona pólitísk deiluefni í þessu alls staðar. En við viljum öll gera miklu betur og ég held að það sé alveg hægt að virkja þann vilja svolítið hressilega til að við náum raunverulegum árangri. En við skulum ekkert vera að blekkja okkur með því, þetta verður alltaf flókið viðfangsefni. Þetta er ekki stríð sem vinnst en við getum alltaf staðið okkur betur og fækkað alvarlegum afleiðingum, fækkað dauðsföllunum. Það er það sem við eigum að stefna að og mér heyrist nú bara á þessari umræðu og oft þegar er verið að ræða þessi mál hérna að við getum alveg tekið höndum saman og gert það.