156. löggjafarþing — 13. fundur,  11. mars 2025.

skipan upplýsingatækni í rekstri ríkisins.

141. mál
[17:56]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um skipan upplýsingatækni í rekstri ríkisins. Frumvarpinu er ætlað að efla samræmi, skilvirkni og öryggi í upplýsingatæknimálum ríkisins og leggja um leið grunn að hagkvæmari og betri opinberri þjónustu. Upplýsingatækni er óaðskiljanlegur hluti af daglegu lífi okkar allra og snar þáttur í rekstri hins opinbera. Hún er lykillinn að nútímalegri þjónustu við almenning og fyrirtæki, bættri stjórnsýslu og markvissari stefnumótun stjórnvalda. Því miður hefur stefnumótun upplýsingatæknimála hjá ríkinu of lengi verið of dreifð og ekki nægilega samræmd. Það hefur leitt til þess að kerfi með sama eða svipaðan tilgang hafa verið þróuð á mörgum stöðum án samhæfingar og samræmingar með tilheyrandi sóun á tíma og fjármunum.

Forseti. Hér er ætlunin að stíga mikilvægt skref í átt að samræmdri og hagkvæmri skipan upplýsingatækni hjá ríkinu. Markmiðið er að tryggja að upplýsingatæknikerfi ríkisins styðji við skilvirka opinbera þjónustu, auðveldi samvinnu milli ríkisaðila og tryggi að gögn séu nýtt á öruggan og ábyrgan hátt. Það fellur mjög vel að markmiðum ríkisstjórnarinnar um hagsýni og umbætur í ríkisrekstrinum. Gert er ráð fyrir að fjármála- og efnahagsráðherra beri ábyrgð á skipan upplýsingatækni í rekstri ríkisins og geti sett viðmið um tækniforskriftir, áhættustýringu og forgangsröðun fjárfestinga. Jafnframt er kveðið á um skyldur ríkisaðila til að miðla gögnum sín á milli þegar það er nauðsynlegt til að veita betri þjónustu eða auka skilvirkni í stjórnsýslunni. Lagt er til að ráðherra hafi heimild til að skilgreina og halda úti sameiginlegum stafrænum innviðum ríkisins. Þetta getur falist í upplýsingakerfum og gagnagrunnum sem nýtast mörgum ríkisaðilum og stuðla að betri nýtingu fjármuna og auknu öryggi. Í þessu samhengi má nefna lausnir sem hafa gefist mjög vel, svo sem stafrænt Ísland, stafrænt pósthólf og miðlæga innskráningarþjónustu hins opinbera. Gagnasamskipti og öryggi eru lykilatriði í opinberri upplýsingatækni. Því er gert er ráð fyrir skyldu ríkisaðila til að nota öruggt gagnaskiptalag í samskiptum sínum og að teknar verði upp samræmdar tækniforskriftir fyrir rekstur upplýsingakerfa.

Forseti. Í frumvarpinu er kveðið á um að ráðherra geti sett reglugerð um hvernig gögnum skuli miðlað milli ríkisaðila, með skýrum skilyrðum um öryggi og persónuvernd. Þannig er gætt að jafnvægi milli aukinnar skilvirkni og verndar viðkvæmra persónuupplýsinga. Málið er unnið í víðtæku samráði við sérfræðinga á sviði upplýsingatækni innan Stjórnarráðsins og hagsmunaaðila í atvinnulífi. Umsagnir bárust frá Persónuvernd, Samtökum iðnaðarins, Viðskiptaráði Íslands, ÖBÍ réttindasamtökum, auk fleiri aðila. Þær ábendingar sem fram komu í umsögnum hafa verið teknar til skoðunar og leitt til nokkurra breytinga á frumvarpinu. Við gerð frumvarpsins var einnig horft til alþjóðlegra viðmiða. OECD hefur ítrekað bent á að skortur sé á markvissri stýringu upplýsingatækni hjá ríkinu og önnur ríki hafa þegar innleitt sambærileg kerfi. Í nágrannalöndum okkar hefur sýnt sig að markviss samræming upplýsingatæknimála í opinberum rekstri hefur leitt til aukinnar skilvirkni og hagræðingar. Sameiginlegir stafrænir innviðir fela í sér mikil tækifæri fyrir ríkið í heild til að spara verulegt fé í innkaupum á hugbúnaði og rekstri upplýsingakerfa.

Forseti. Dreifstýrð nálgun hefur hingað til leitt til óhagræðis þar sem hver stofnun hefur þurft að finna sínar eigin lausnir. Með miðlægri stefnumörkun mun ríkið geta nýtt stærðarhagkvæmni og tryggt að upplýsingatæknikerfi séu í samræmi við bestu tæknilega staðla. Á það er sérstaklega bent að frumvarpið felur ekki í sér miðstýringu rekstrar upplýsingatækni hjá öllu ríkinu heldur stuðlar það að heildarsýn og aukinni samræmingu þar sem við á. Með því tryggjum við að opinber þjónusta verði hagkvæmari, öflugri og notendavænni.

Forseti. Ég tel að frumvarpið marki talsverð tímamót í stefnumótun hins opinbera á sviði upplýsingatækni. Með því er lagður grunnur að öflugri, hagkvæmari og öruggari stafrænum innviðum ríkisins. Þeir munu bæta þjónustu við almenning og styðja við nauðsynlega framþróun íslenskrar stjórnsýslu.

Forseti. Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. fjárlaganefndar til meðferðar fyrir 2. umræðu.