156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

Staða efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar.

[11:22]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Það gladdi mig þegar ríkisstjórn Íslands boðaði aðhald í ríkisrekstri og stofnaði starfshóp um hagræðingu í rekstri ríkisins. Nú hefur sá hópur skilað tillögum sínum og mig hreinlega rak í rogastans að sjá niðurstöðurnar: 71 milljarður yfir 5 ára tímabil, sem mun sennilega að meðaltali skila um 1% á ári af rekstri ríkissjóðs — 1%. Hvar er nú metnaðurinn? Þetta er varla tölfræðilega marktæk breyting, í raun bara áætlun um óbreytt ástand.

Því spyr ég hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Hvaða verkefni fól ríkisstjórnin hagræðingarhópnum þegar hún lagði af stað til að vinna úr hagræðingartillögunum? Hver var sýn ríkisstjórnarinnar? Var hún að ná fram 1% sparnaði á ári, ná eins mikilli hagræðingu og mögulegt er eða var markmiðið eitthvað allt annað?

Eins var pólitískum tillögum hent út. Var það að beiðni ríkisstjórnarinnar og af hverju? Fulltrúar meiri hlutans eru lýðræðislega kjörnir út frá stefnu sinni og hugmyndafræði en virðast nýta hvert tækifæri til að forðast pólitíska ábyrgð sína. Ég fagna því að ríkisstjórnin fái utanaðkomandi aðila til að taka þátt í að bæta ríkisreksturinn en þá verða pólitísk skilaboð að vera skýr. Hver er raunverulegur vilji ríkisstjórnarinnar þegar kemur að hagræðingu? Eða erum við bara að horfa upp á leikrit?

Ef ráðherrar treysta sér ekki í verkið þá geta þeir allt eins stofnað valnefnd sem skipar hæfasta fólkið til að sinna hlutverki hvers ráðherra. Svo er það nú þannig að ráðherra sem ætlar ekki að byggja göng fyrr en á næsta kjörtímabili er auðvitað ekkert að marka, ekki frekar en ríkisstjórn sem sparar fyrst og fremst á næsta kjörtímabili. Ég hvet því af heilum hug ráðherra ríkisstjórnarinnar að byrja strax að spara í ríkisrekstrinum af miklu, miklu meiri krafti.