156. löggjafarþing — 14. fundur,  13. mars 2025.

Staða efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar.

[11:27]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Skýrsla fjármálaráðherra um langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum var birt í vikunni. Skýrslan dregur fram mikilvægar forsendur um þróun samfélagsins og lýðfræðilegra breytna næstu 30 árin. Í ljósi mikilvægis skýrslunnar langar mig að vekja athygli á eftirfarandi:

Í fyrsta lagi er lítið sem ekkert fjallað um svokallaða innviðaskuld eða tímabæra uppbyggingu innviða sem mun án efa taka 10–15 ár og kosta tugi milljarða á ári hverju. Um er að ræða grundvallaratriði við mat á þróun opinberra fjármála. Ekkert sjálfstætt mat er lagt á slíkan kostnað eða ábata. Aðeins er rætt með almennum hætti um innviði og svo er fræðileg umfjöllun um samspil framleiðni og hagvaxtar.

Í öðru lagi tekur skýrslan ekki á mögulegri aukningu til varnarmála, svo sem þann möguleika að 2% af landsframleiðslu fari til varnarmála af ýmsu tagi eins og Evrópa er að vakna upp við þessa dagana. Hugsanlega verður um tugmilljarða útgjöld að ræða á ári.

Í þriðja lagi er meiri háttar óvissa um þróun tollamála þvert á landamæri. Skýrslan fjallar vissulega um vaxandi spennu milli ríkja, tollastríð og viðskiptablokkir, en lítið er um nákvæma eða sundurliðaða greiningu á afleiðingum þessa þáttar. Því er spurning hvort skýrslan nái fullum tilgangi sínum. Getur þingið í raun rætt um þróun efnahagsmála og opinberra fjármála til lengri tíma ef ekki er búið að greina nánar þessa grundvallaróvissuþætti? Þarf hugsanlega að endurmeta forsendur skýrslunnar í ljósi atburða síðustu daga sem marka munu samfélags- og atvinnuþróun næstu áratugi?