sveigjanleg tilhögun á fæðingar- og foreldraorlofi.
Forseti. Já, við erum komin á góðan stað og það er vegna þess að þeir sem hér stóðu í þessum þingsal á undan okkur börðust fyrir því að við kæmumst á þennan stað. Ég er mjög hræddur við að fara til baka með þessum hætti, eins og það er lagt til í þessari ályktun þá væri það afturför. Við sjáum það alls staðar að við erum að horfa á afturför í réttindum, um allan heim. Við erum á góðum stað. Tökum þessa umræðu alveg og finnum bestu leiðina. Reynum að finna svarið sem hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson var að tala um áðan varðandi einstæðu móðurina, reynum að finna svar við því. Svarið er ekki að fara til baka í eldri útgáfu af þessu.