Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, fyrir að vekja máls á einmanaleika eldra fólks hér í þingsal. Þetta er eitthvað sem við þurfum að ræða, einmanaleiki. Þetta er vaxandi vandi og ber að líta á sem lýðheilsuógn. Eins og hefur verið rætt er velferðartækni eitthvað sem getur klárlega nýst þessum hópi en samskipti augliti til auglitis eru það sem gerir gæfumuninn og mér finnst mjög mikilvægt að við stöldrum aðeins við. Þetta er vandamál sem er ekki til nein einföld, fljótleg lausn við fyrir okkur sem löggjafa til að grípa til og þá náttúrlega þær lausnir sem við viljum yfirleitt grípa til — eða í þessu tilfelli eru þær ekkert endilega til og ég fagna því sem hefur komið fram hér.
Ég vil líka fá að nýta þennan vettvang og beina því til minnar kynslóðar að staldra einmitt við oftar, og ég er að reyna að minna mig á það líka, og velta fyrir sér: Er einhver í okkar fjölskyldu sem okkur grunar að gæti verið einmana, hvort sem það er amma eða afi eða frændi eða frænka, og hvenær heyrðum við seinast í viðkomandi, og líka velta fyrir sér öllu því sem þau hafa gengið í gegnum og tekist á við á sinni lífsleið og hvað við gætum fengið út úr því að setjast oftar niður með þeim og ræða lífið og tilveruna. Heimurinn er á sífellt meiri hraða, við erum í kapphlaupi hvert við annað og setjum kröfur á okkur sjálf sem geta komið niður á gæðastundum með okkar nánustu. Það er mikilvægt að bregðast við þeirri lýðheilsuógn sem einmanaleiki er með því að fjölga gæðastundum og hægja á kapphlaupinu, fá sér kaffibolla með ömmu, skoða myndaalbúm með afa, því öll höfum við þörf fyrir að tilheyra, þörf fyrir tengsl og það á ekki síður við um okkur sjálf.