Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Kolbrúnu Baldursdóttur málshefjanda fyrir að setja þetta mikilvæga mál á dagskrá. Eins vil ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma og taka þátt í umræðunni með okkur. En það er líka afar mikilvægt þegar við erum að ræða þetta hér í dag að við áttum okkur á því, og ég held að allir geri það, að það að eldast er ekki sjúkdómur. En það eru vissulega ýmsar áskoranir sem fylgja því að eldast. Rannsóknir benda einmitt til þess að einmanaleiki eldra fólks á Íslandi kunni að vera meiri en opinber gögn gefa til kynna. Einmanaleiki er vandamál sem margir, hef ég heyrt, skammast sín hreinlega fyrir. Því er ljóst að það eru ansi margir sem tala ekki um þetta en það þýðir samt sem áður ekki að vandinn sé ekki til staðar.
Á síðasta kjörtímabili var ég ein af þeim sem beittu sér fyrir því að verkefnið Gott að eldast yrði hluti af opinberri aðgerðaáætlun. Þar koma fram ýmsir þættir. Það kemur inn á samspil og samvinnu ríkis og sveitarfélaga, sem er afar mikilvægt, og inn í þetta verkefni koma m.a. tillögur hóps sem samanstóð af fjölda fólks, m.a. einstaklingum úr Landssambandi eldri borgara, sem lagði fram vissar tillögur sem rötuðu þarna inn, sem miðuðu einmitt að því að bæta betur þjónustu og aðbúnað eldra fólks.
Það hefur verið gerð könnun á því hver einmanaleiki eldra fólks er eftir uppruna og sú vinna er mikilvæg, sérstaklega í ljósi þess að samfélagið okkar er að breytast. Ég tel að það sé afar mikilvægt að stjórnvöld fylgi henni eftir með úrræðum sem ná til þeirra sem mest þurfa á því að halda, því að þótt velferðartæknin, líkt skjáheimsóknir og vinahringingar, hafi reynst gagnleg þá verðum við auðvitað að horfast í augu við það sem gamla fólkið, eldra fólkið okkar er að segja: Það sem skiptir raunverulega mestu máli eru raunveruleg mannleg tengsl; nánd, samtöl augliti til auglitis. Við þurfum öll sem samfélag að taka það til okkar og hugsa um okkar nánustu en einnig þurfum við fagfólk og sjálfboðaliða.
Ég þakka kærlega fyrir þessa umræðu hér í dag og biðla til okkar allra sem samfélags að bregðast við þessum vanda.