156. löggjafarþing — 18. fundur,  20. mars 2025.

Einmanaleiki og einangrun eldra fólks.

[11:26]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir frumkvæðið að þessu mikilvæga máli. Þetta vandamál sem hv. þingmaður dregur hér fram í dagsljósið er öllum ljóst sem eru aðstandendur og hafa komið inn á hjúkrunarheimili undanfarin ár. Það er auðvitað heldur ekki langt síðan við gripum hér til þeirrar lausnar við heimsfaraldri að einangra eldra fólk á hjúkrunarheimilum og sjúkrastofnunum nánast algerlega. Þótti manni þó nóg um fyrir. Að mínu mati er þetta meðal þess sem þyrfti svo nauðsynlega að gera upp varðandi aðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri.

Hv. þingmaður hvetur hæstv. ráðherra til að hugsa út fyrir boxið og til að skoða fjölbreyttar lausnir og ég vona að þær muni ekki hverfast um að bæta við fleiri opinberum starfsmönnum í stjórnsýsluna og stofnun starfshópa. Og talandi um að hugsa út fyrir boxið þá man ég eftir tilraunaverkefni, að því er mig minnir í Breiðholti, fyrir einhverju síðan sem snerist um sambýli eldra fólks á hjúkrunarheimili og ungmenna. Það væri e.t.v. hægt að hugsa þessa blöndu eitthvað frekar, t.d. stúdenta og eldra fólks. Svo má nefna fyrirtæki eins og Sinnum sem hefur verið mikilvægt til að bæta velferðarþjónustu m.a. við eldra fólk og spurning hvort væri hægt að nýta í meiri mæli. Það væri gott að heyra viðhorf hæstv. ráðherra til þess.

En af því að bæði hv. málshefjandi og hæstv. ráðherra tengjast stjórn Reykjavíkurborgar, eins og við höfum séð, verð ég að nefna þéttingarstefnuna og bílastæðaleysið þar. Sú stefna hefur sannarlega ekki tekið mið af einangrun eldra fólks í Reykjavík. Þar er ekki verið að hugsa um hagsmuni þess.

Að lokum má ég til með að nefna sóknargjöldin sem koma reglulega til kasta þingsins. Þau standa, eins og við vitum, m.a. undir félagsstarfi í kirkjum um allt land og við ættum auðvitað að styðja það enn frekar, m.a. til að efla þátttöku eldra fólks.