breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir svarið. Auðvitað er það þannig að við tökum mál og virðum þau fyrir okkur og skoðum gögn með og á móti og svo verður maður bara að standa með sínum ákvörðunum í því. Það sem kristallast kannski í orðum þingmannsins er að stundum þurfum við þingmenn líka að vekja athygli á málum og setja þau í samhengi og ég óttast að það hafi ekki verið þannig síðasta haust þegar þessi gjaldtaka var ákveðin. Það var bara ekki nógu mikil umræða á dýptina um þessi mál og hvaða áhrif þetta hefur haft.
Ég upplifi mjög víða í þessu að fólk er að rugla saman, af því að þetta voru tvær aðgerðir sem voru hér í fyrrahaust. Það var sett á innviðagjald, 2.500 kr., og svo var tollfrelsi hringsiglinganna afnumið. Tollfrelsi litlu skipanna, leiðangursskipanna, sem fara á allar litlar hafnir landsins var afnumið og skipin fara þá frekar á stóru hafnirnar, því að þau þurfa að velja úr. Þetta hefur gríðarleg áhrif á litlu hafnirnar. Mig langar að spyrja þingmanninn, af því að mér finnst oft í umræðunni að þessu sé blandað saman, innviðagjaldinu og svo afnámi tollfrelsis á hringsiglingunum, hvernig sú umræða hefur verið, hvort hún hafi verið aðskilin eða hvort fólk sé að grauta þessu almennt saman. Ég held nefnilega að afnám tollfrelsis hringsiglinga hafi gríðarleg áhrif á litlu hafnirnar, ekki eins mikið og á stóru ef mín tilfinning er rétt. Það væri ágætt ef þingmaðurinn gæti kannski dýpkað okkur í þessum efnum.