157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:56]
Horfa

Tryggvi Másson (S):

Virðulegur forseti. Ég hef lært ýmislegt af hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, einkum og sér í lagi úr hans fyrra lífi sem fræðimaður í Háskóla Íslands. Við störfuðum þar saman og unnum svo líka saman í einu verkefni í ráðuneyti og eitt af því sem ég get þakkað honum sérstaklega fyrir er að hafa lært að kunna að meta kosti einfalds skilvirks skattkerfis með fáum undanþágum og fáum ívilnunum. Þeir kostir eru ótvíræðir og ég er mjög þakklátur fyrir þá sýn á lífið sem ég fékk snemma. En eftir því sem ég verð eldri þá kemst ég að því að lífið er ekki einfalt og skilvirkt, með fáum undanþágum og fáum ívilnunum. Lífið er nefnilega flókið og óskilvirkt, með alls konar beygjum og áskorunum sem þú þarft að takast á við. Ég lærði það með því að eignast barn, eignast hús eða kaupa hús með skuldum, með því að skipta um vinnur og takast á við alls konar áskoranir í lífinu að þetta einfalda og skilvirka nær ekki utan um allt. Það nær ekki utan um þessi tilfelli í lífinu sem maður sér ekki fyrir sjálfur. Þess vegna finnst mér mikilvægt að þingmenn hafi í huga þegar verið er að fella úr gildi ívilnanir og undanþágur það fólk sem þetta hefur áhrif á. Það eru einhverjir einstaklingar sem eignuðust barn og búa í Reykjavík þar sem er rosalega dýrt að lifa og erfitt að komast inn á leikskóla. Ég þekki dæmi nálægt mér þar sem einstaklingur eða fjölskyldan er búin að nýta allan rétt sinn til fæðingarorlofs og eftir stendur að þau þurfa bara að ákveða núna hvor aðilinn fari í launalaust leyfi frá vinnunni til þess að hugsa um barnið þangað til það kemst í dagvistun. Þessir einstaklingar myndu njóta góðs af því að vera með samsköttun.

Ég vil bara nýta þessa ræðu, mína fyrstu ræðu á Alþingi, til þess að brýna fólk hér inni að hafa það hugfast að einfaldleikinn og skilvirknin kostar einhvern eitthvað þó að það sé gott fyrir hagsmuni heildarinnar. Og ef þessi ívilnun er ekki rétti vettvangurinn til að bæta upp stöðu þess sem verður fyrir einfölduninni þá þarf að bæta það upp með einhverri annarri leið.

Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að skoða alvarlega hvort það sé hægt að bæta þessum fjölskyldum upp það tjón sem þær verða fyrir með afnámi samsköttunarinnar með einhverjum öðrum leiðum.