157. löggjafarþing — 10. fundur,  23. sept. 2025.

sýslumaður.

111. mál
[17:52]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Störfin sogist til Reykjavíkur eða höfuðborgarinnar. Það væri þá gegn lagatextanum, verði hann samþykktur, þar sem markmiðin eru reifuð. Það færi þá skýrlega gegn þeim lögum og nýr sýslumaðurinn yrði í ákveðnu klandri hvað það varðar vegna þess að lagatextinn er beinlínis skrifaður með þeim hætti að ekki aðeins eigi að verja störf heldur að flytja þau í þeim tilvikum sem það á við. Þannig að þegar þingmaðurinn lýsir eftir yfirlýsingu þá myndi ég segja: Sú yfirlýsing er sterkari í þessu frumvarpi en var í fyrra frumvarpinu hvað varðar þessa byggðaáherslu. Sú yfirlýsing gengur lengra. Ég lýsti því líka yfir við allsherjarnefnd í meðförum málsins síðast að mér finnst það vel koma til greina að höfuðstöðvarnar séu á landsbyggðinni. Mér finnst ekki góður bragur á því að festa það í lagatexta hvert heimilisfangið eigi að vera.