157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.

[11:22]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Hún er áhugaverð. Ég hefði samt viljað að það yrði kallað aðeins betur eftir því hvað það er nákvæmlega sem menn kalla ólöglega veðmálastarfsemi. Hæstv. dómsmálaráðherra fór ágætlega yfir löggjöfina sem um þetta gildir og nefndi að þetta væri svona umfram annað pólitískt álitaefni. Þetta væri verkefni fyrir pólitíkina og þar gætu auðvitað verið skiptar skoðanir um þetta. Ég held reyndar að þetta mál sé stærra en svo. Auðvitað tengist það pólitíkinni líka, veruleikinn, og veruleikinn held ég að skipti mestu máli í þessu máli. Hafi menn hins vegar þá pólitísku sannfæringu að t.d. banna svona veðmálastarfsemi, innlenda eða erlenda, þá komast menn ekki hjá því líka að horfa til veruleikans; hver hinn raunverulegi veruleiki er og hverjir eru raunverulegir möguleikar til þess að gera þetta.

Það sem ég tek út úr þeim ræðum sem hafa verið fluttar hér á undan mér um ólöglega veðmálastarfsemi er að mig grunar helst að hér sé vísað til erlendra veðmálasíðna. Það er enginn vafi í mínum huga að ekkert er ólöglegt við það að menn veðji á erlendum veðmálasíðum. Þannig að það er kannski svolítið villandi að tala um þetta sem ólöglega veðmálastarfsemi. Það hafa komið upp hugmyndir um að loka á — ég þekki það frá því að ég sat í embætti dómsmálaráðherra fyrir mörgum árum — þá var raunverulega lagt til að lokað yrði á IP-tölur erlendra síðna. Það er í sjálfu sér hugmynd en hún gengur ekki upp, hvorki tæknilega né af nokkrum hugsjónaástæðum, að menn fari að loka á erlendar síður. Ég myndi frekar vilja heyra í ræðum þeirra sem ætla að taka þátt í þessari umræðu hvernig þeir nákvæmlega sjá fyrir sér, ef þeir telja þetta vandamál, að brugðist verði við. Ég fyrir mitt leyti tel helst koma til greina í þessu að gefa þessum innlendu góðgerðarfélögum (Forseti hringir.) og öðrum sem hafa nýtt veðmálastarfsemi til fjármögnunar góðgerðarstarfsemi auknar heimildir til að keppa við þessa erlendu aðila sem hér eru á internetinu.