157. löggjafarþing — 11. fundur,  25. sept. 2025.

Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.

[11:24]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Ólögleg veðmálastarfsemi hefur farið vaxandi í íslensku samfélagi og án nokkurs vafa með afdrifaríkum afleiðingum fyrir marga og samfélagið í heild. Lítið hefur verið aðhafst og umræðan oft og tíðum mótsagnakennd. Íþróttahreyfingin, Háskóli Íslands, Rauði krossinn á Íslandi og Landsbjörg hafa þannig opinberlega gagnrýnt ólöglega veðmálastarfsemi en hafa sjálf verið leiðandi í rekstri fjárhættuspila á Íslandi.

Frú forseti. Þessir aðilar hafa stuðlað að útbreiðslu spilakassa og annarra fjárhættuspila sem eru sérstaklega hönnuð til að hafa fé af fólki. Horft hefur verið fram hjá vanda þessa fólks sem haldið er spilafíkn og sækir í þessa kassa. Sagt er að starfsfólk sérleyfishafa hafi jafnvel sótt fjárhættuspilaráðstefnu í Las Vegas til að kynna sér nýjustu tæki og leiðir til að draga fólk að kössunum. Ég hef heyrt að Íslandsspil, sem er í eigu Rauða krossins og Landsbjargar, hafi fengið viðkvæma hópa fólks með spilafíkn í eins konar tilraunasal til að rannsaka hvaða spilakassar og leikir eru líklegastir til að tryggja sem mestar tekjur. Það er athyglisvert, frú forseti, að mestu áhyggjur innlendra sérleyfishafa og stofnana eins og Háskóla Íslands snúast um innkomu erlendra aðila á spilamarkaðinn sem ekki hafa fengið leyfi íslenskra stjórnvalda til starfseminnar. Þessir aðilar vilja sem sagt verja sína stöðu gagnvart íslenskum spilafíklum en hafa litlar sem engar áhyggjur af afleiðingum starfseminnar. Þetta er gríðarlega arðbær starfsemi og ekki skal dregið í efa að innlendir rekstraraðilar hennar þurfa á fjármunum að halda. En þetta er ákaflega skaðleg starfsemi og það ber fyrst og fremst að hafa í huga varðandi allar leyfisveitingar.

Hvernig má það vera, frú forseti, að sárasjaldan er talað um fólkið sem fjármagnar þennan gróða? Hvers vegna vilja stofnanir eins og Háskóli Íslands, Rauði krossinn og Landsbjörg, opna fjárhættuspil á netinu þrátt fyrir að skaðsemi þeirra séu vel skjalfest og vel þekkt? Hagsmunir þessara aðila virðast settir ofar samfélagslegri ábyrgð eða er gróðahyggjan ein og sér göfug?