Ólögleg veðmálastarfsemi á Íslandi.
Frú forseti. Í þessari umræðu finnst mér kristallast svolítið hinn pólitíski munur á Viðreisn og Samfylkingunni, frjálslyndum demókrötum og sósíaldemókrötum. Mér finnst ég nú kannski líka hingað kominn sem fulltrúi frjálshyggjuarmsins innan Viðreisnar. Vinstri menn hafa þá tilhneigingu að halda að hægt sé að leysa öll vandamál með því að banna eitthvað; að ekkert vandamál sé svo flókið að ekki megi leysa það með því að banna það. En það hefur aldrei gefið neitt sérstaklega góða raun. Ekki þegar við bönnuðum bjór. Ekki þegar við bönnuðum vín. Þá er ég alls ekki að gera lítið úr þeim skaða og þeim ömurleika og aðstæðum sem fólk í fíkn lendir í. En lausnin er ekki að banna áfengi út af því að einhverjir verða háðir áfengi eða takmarka aðgengi fólks, sem á ekki í erfiðleikum með að umgangast áfengi, að áfengi með íþyngjandi regluverki og einhverjum nýjum eftirlitsstofnunum. Það er stefna okkar að við eigum frekar að lögleiða þessa hluti, aflétta boðum og bönnum en gera það undir skýru eftirliti og með úrræði fyrir fólk sem kemst í óefni af þessari starfsemi, og þá frekar að eyða þeim mikla pening sem við ættum þá eftir í fræðslu um að þetta geti verið gaman og það geti verið gaman að fá sér í glas en það geti líka verið áhætta fyrir suma. Þannig að: Fræðsla, ekki banna. Takk fyrir.