157. löggjafarþing — 12. fundur,  6. okt. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[17:54]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil þó undirstrika svo einskis misskilnings gæti að þetta snýst um að núverandi kerfi, þar sem greitt er fyrir notkun veganna í gegnum olíu- og bensíngjald, leggst þyngra á landsbyggðina heldur en kílómetragjaldið mun gera. Þessi breyting er jákvæð fyrir landsbyggðina. Svo skilningur þingmannsins sé alveg örugglega ekki sá að ég hafi verið að víkja að því að um eitt gjaldstig sé að ræða upp í þrjú og hálft tonn.

Varðandi síðari hlutann: Hugmyndafræðin sem frumvarpið byggir á, og kemur frá fyrri ríkisstjórn og er á margan hátt eðlileg og skynsamleg, snýr að því að þeir sem nota borga. Nú getum við verið þeirrar skoðunar að í einhverjum tilfellum sé ástæða til þess að beita einhverjum leiðum til að draga úr kostnaði við atvinnurekstur á landsbyggðinni eða við að búa á landsbyggðinni og við erum með fjölmörg slík kerfi. Nú er væntanlegt fljótlega frumvarp hæstv. umhverfis- og loftslagsráðherra um jöfnun á flutningskostnaði raforku. Fullkomlega eðlilegt skref sem tekið er til að jafna stöðu borgaranna. Varanlegar undanþágur hins vegar draga úr hvatanum til þess að velja hagkvæmustu leiðirnar til að flytja vöru og þjónustu. Þær á endanum leiða til þess að hvatarnir til að beita hagkvæmustu aðferðum við flutninga veikjast og fara meira að endurspegla fyrirkomulag undanþágnanna heldur en eiginlega viðskiptalega hvata. Það er það sem ég óttast í þeirri nálgun sem hv. þingmaður bar hér fram og vil þess vegna spyrja beint út: Væri ekki eðlilegra að það væri frekar beitt aðferðum sem eru hliðstæðar því sem beitt er við jöfnun á flutningskostnaði raforku frekar en þetta sé byggt inn í kílómetragjald?