kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir síðara andsvarið. Ég tek undir með hæstv. ráðherra. Ég er alveg sammála því að þetta frumvarp er jákvætt að mörgu leyti fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Ég sagði í upphafi minnar ræðu um aðferðafræðina sem er undir að ég er í grunninn algerlega sammála. Enda væri það mjög sérstakt ef ég hefði tekið Ragnar Reykás hér og væri komin á móti frumvarpi sem ég stóð með á sínum tíma. Það er ekki minn karakter.
Varðandi þessar varanlegu undanþágur eða tímabundnar og að koma svo til móts við þær annars staðar: Ég stend bara á þeim stað og er þeirrar skoðunar að það sé miklu hreinlegra að taka þetta og gera að varanlegum undanþágum í þessu frumvarpi í staðinn fyrir — það má hrista hausinn, hæstv. ráðherra má hrista hausinn, við þurfum ekki að vera sammála og við erum ekki kosnir til þess endilega — að vera með frumvarpið með einhverjum undanþágum sem eru síðan dregnar til baka eða deyja út við einhvern ákveðinn tíma og svo þurfum við að koma með frumvarp einhvers staðar annars staðar frá til þess að hreinsa upp eftir okkur í þessu frumvarpi. Ég held að það sé miklu eðlilegra að þetta sé bara hér. Þá ertu kominn með fyrirsjáanleikann og þú ert kominn með það í þessu frumvarpi. Þetta er sú leið sem menn ætla að fara. Þeim sem starfa í þessari atvinnugrein er þá ljóst hvernig menn vilja hafa þetta til langframa. Ég tel að það sé miklu hreinlegra að þetta sé hér inni, undanþágan sé bara varanleg, heldur en (Forseti hringir.) að setja einhverjar tímabundnar heimildir sem við þurfum síðan að hreinsa upp eftir okkur annars staðar með öðrum lögum.