rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.
Forseti. Já, ég tek undir með hv. þingmanni, ég er sammála því, við þurfum að huga að því. Ég veit ekki hvort það sé Sjúkratryggingum um að kenna eða ekki. En ég vil beina því til þeirra þingmanna sem sitja í hv. velferðarnefnd, vegna þess að við erum líka með mál tengd Sjúkratryggingum í þeirri nefnd, að fara yfir það. Eins og við sjáum í þessari þingsályktunartillögu, sem virðist vera, að ég held, bara fullur stuðningur við hjá öllum þingheimi, þá áttum við okkur alveg á því hvað sjálfsvíg í þessu tilfelli kosta samfélagið alveg ofboðslega mikið. Eins og ég var að fara yfir áðan þá eru til rannsóknir sem benda til þess að ákveðnir hópar séu í meiri hættu en aðrir. Þá eigum við auðvitað að beina forvörnum að þeim. Og þegar kemur að þeim sem glíma við fíknivanda af einhverju tagi þá vitum við líka að þar er fráfallið mikið. Við missum mikið af fólki, hvort sem það er vegna þeirra eigin ákvarðana eða eitrana eða einhvers sem þau ætluðu sér ekki að gera. Þegar við sjáum þann árangur sem er að nást, hvort sem það er Krýsuvík eða SÁÁ eða Hlaðgerðarkot eða meðferðarúrræði erlendis, þá hljótum við að geta reiknað okkur niður á það að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að greiða fyrir slíka meðferð. Hv. þingmaður nefndi líka POTS sem hefur aðeins verið til umræðu hérna. Ég held að þingheimur og hæstv. heilbrigðisráðherra þurfi að taka á þessu máli og skera úr um það að við viljum greiða niður meðferðir sem virka þó að það sé mögulega ekki til einhver vísindarannsókn sem hefur nákvæmlega sýnt fram á það og hvort sem viðkomandi meðferðarúrræði er gagnreynt eða ekki. En þegar við vitum að þau virka og þau hafa sýnt það þá viljum við að hið opinbera gangi á undan með góðu fordæmi og taki þátt í slíkum kostnaði.