rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.
Forseti. Ég vil byrja á því að þakka þeim hv. þingmönnum sem hér taka þátt í umræðunni fyrir mjög góða og mikilvæga umræðu um málefni sem ég hygg að snerti okkur öll að einhverju leyti. Ég held að við flest þekkjum einhvern sem hefur einhvern tímann glímt við eitthvað, ef svo má segja, og það er kannski það sammannlega hérna hjá okkur öllum að við eigum öll okkar sögu og okkar reynslu og ég hef einmitt hlustað eftir því í dag.
Ég tók eftir því að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi stöðu trans fólks sérstaklega. Mig langar að deila þessum áhyggjum með hv. þingmönnum vegna þess að ég hef séð það í kringum mig og á þeim vettvangi sem ég hef starfað á, ég hef t.d. sinnt hinsegin fræðslu í skólum og tekið þátt í alls konar vitundarvakningu, þá hef ég bara horft á ákveðið bakslag í orðræðu í garð hinsegin ungmenna og sérstaklega trans fólks. Mig langaði því að spyrja hv. þingmann hér í mínu fyrra andsvari hvort hún deili þessum áhyggjum með mér, að það er þessi skautun sem er einhvern veginn að gera trans fólk að einhverjum sérstökum óvini samfélagsins. Þetta er innflutt umræða og orðræða að einhverju leyti frá Bandaríkjunum en þarna er verið að taka einn jaðarsettasta hóp ungmenna á Íslandi og setja hann inn í kastljósið. Meira að segja í þessum þingsal höfum við séð það gerast þar sem orðræðan í einhverjum pólitískum tilgangi er gerð á þann hátt að það er bara verið að meiða þennan hóp sérstaklega. Ég hef því miður upplýsingar um það að þetta hafi haft bein áhrif á sjálfsmynd og jafnvel sjálfsskaða ungmenna sem eru trans, þannig að ég væri til í að fá smá upplýsingar um þetta.