rannsókn á orsakaferli í aðdraganda sjálfsvíga og dauðsfalla vegna óhappaeitrana.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég nefndi hér sérstaklega trans fólk í samhengi við þessa þingsályktunartillögu sem hér liggur fyrir vegna þess að ég veit það og ég þekki það sjálf, hafandi þekkt móður sem á trans barn. Hún hefur fengið stóran bunka upplýsinga frá læknum sem sýna fram á alla áhættuna sem hennar barn er í og hvað sjálfsvígsáhættan er miklu, miklu meiri en hjá öðrum ungmennum vegna þess að barnið hennar er trans. Þetta eru bara staðreyndir, örugglega gagnreyndar ef út í það er farið í þeirri umræðu. Það er auðvitað svakalegt. Þess vegna tel ég mikilvægt — og við höfum byggt upp trans teymi sem áttu einmitt að taka á þessu þverfaglega — annars vegar að aðstoða viðkomandi börn eða einstaklinga sem eru trans en ekki síður fjölskylduna alla og halda utan um einstaklingana. Ég deili því alveg þeim áhyggjum sem hv. þingmaður nefndi hér að það er rosalega mikilvægt hvernig orðræðan er úti í samfélaginu um slíka hópa sem eru í þessari áhættu, ég tek heils hugar undir það.
Hér á Íslandi hefur okkur tekist að byggja upp mikið jafnréttisríki. Ég ætla ekki að segja að hér sé allt í algerum blóma og æðislegt því það er alltaf hægt að gera betur, en við höfum gengið mjög langt í því að tryggja lagalegan rétt einstaklinga. Ég tók sjálf þátt í því þegar við samþykktum frumvarpið um kynskráningu algerlega óháð því að einhver læknir eða einhver úti í bæ þyrfti að skrifa upp á það. Fyrir mér er það risastórt frelsismál að þú ráðir yfir eigin líkama og að þú getir líka ákveðið það ef þú vilt láta breyta þinni kynskráningu eins og við gerðum þarna og ég veit að við stigum skref á undan mörgum öðrum ríkjum. Ég er stolt af því að hafa verið þátttakandi í því og ég vona að við getum haldið áfram að byggja upp jafnréttisríkið á Íslandi óháð því hvort það snýst um kyn, kynhneigð, um trans fólk eða annað þess háttar.