flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina. Ég veit að við deilum ástríðunni fyrir orkusögunni, við erum sammála um mikilvægi vatnsaflsins í okkar orkukerfi og ég veit líka að við deilum áhuga á umræðunni um það hversu mikilvægt það er að horfa á dreifingu og nýtingu orkukosta því það er lykilmál. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að það er dæmi um breytu sem ekki er tekið tillit til þegar verið er að horfa á hvernig skuli meta virkjunarkosti innan rammaáætlunar. Vissulega er það þannig að mörg af okkar verðmætustu eggjum í orkukörfunni, ef svo má segja, eru á sama stað þannig að ég get tekið undir að það eigi að horfa á þessa dreifingu ef við erum að horfa á orkuöryggi í samhengi t.d. við náttúruhamfarir og annað.
Mig langar til að spyrja: Telur hv. þingmaður ekki að það sé hægt að ná fram þessum breytingum í samhengi við núgildandi kerfi, að bæta vægi orkuöryggis út frá t.d. náttúruhamförum inn í rammaáætlun? Núna er verið að vinna að því að einfalda það ferli og fyrri ríkisstjórn tókst að samþykkja rammaáætlun og það hefur verið töluverður skriður á málinu. Sér hv. þingmaður ekki tækifæri í því að halda áfram að vinna að því að straumlínulaga og bæta núverandi kerfi? Værum við ekki að horfa á mögulega einhvers konar hliðarskref hér?