157. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[19:08]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Hér er rætt mikið um ríkisstyrki og mér heyrist sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, vilja auka enn frekar ríkisstyrki. Það er ekki vilji þess sem hér talar. Ég hef talað fyrir því um árabil að taka RÚV af auglýsingamarkaði. Ég hef talað fyrir því að taka þessa ríkisstyrki burtu vegna þess að það er einfaldlega óeðlilegt að hafa þá. Ef þeir ættu að fara í eitthvað væri það þá frekar þessi stefna sem ríkisstjórnin er að boða, þ.e. að það renni að einhverju leyti til héraðsmiðla þar sem sannarlega er markaðsbrestur fyrir hendi. Það er skrýtið að hlýða hér á fulltrúa Sjálfstæðisflokksins tala niður fjölmiðla eins og Austurfréttir. Ég verð bara að vekja athygli hv. þingmanns á því að frá Austurlandi kemur gríðarlega mikill hluti vöruútflutnings þjóðarinnar. Ég vil segja að fréttaflutningurinn endurspeglar það ekki hjá þeim fjölmiðlum sem hafa höfuðstöðvar hér í Reykjavík. Þannig að varðandi hlutverk héraðsmiðlanna; ég vil bara upplýsa hv. þingmann um það að t.d. á Austurlandi, þaðan sem bróðurparturinn af útflutningstekjum þjóðarinnar kemur, gott ef það er ekki fjórðungur — að það kemur lítið fram um þá mikilvægu starfsemi sem þar er í stærri fjölmiðlum. Hún kemur helst fram í héraðsblöðunum. Þannig að mér finnst svolítið miður að um leið og hv. þingmaður talar hér fyrir auknum ríkisútgjöldum þá sé hann að tala niður þá starfsemi og þá fjölmiðla sem eru úti á landi, sem við þurfum miklu frekar að styðja, því að það er einn af þáttunum sem skipta landsbyggðina miklu máli, þ.e. að fá jákvæðari umfjöllun í samfélaginu um það góða umhverfi og góðu lífsskilyrði sem eru úti á landi.