stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið eða viðbrögðin. Ég ætla að lýsa mig sammála honum um að það var í sjálfu sér ekki ágreiningur í nefndinni um vinnuna sem slíka og ég held að við höfum í grunninn verið algerlega sammála með þetta, að þetta gæti ekki orðið að niðurstöðu öðruvísi en er að birtast okkur hér. Ég held að það hafi verið skynsamlegt af nefndinni að nefna að það væri ekki rétt að vera með eina skýrslu í staðinn fyrir þrjár. Ég held að það sé alveg rétt mat, eins og kom fram t.d. hjá Byggðastofnun, að það er alltaf hætta á því að það væri þá kannski svolítið á áhugasviði þess sem flytti skýrsluna hvað fengi mesta athygli og hvað væri lögð áhersla á. Ég ætla samt að halda því til haga að ég tel að það hafi verið óskynsamlegt að setja inn í stjórnarsáttmálann í upphafi að færa mál á milli með þessum hætti, en það er auðvitað eitthvað sem ríkisstjórnin tók ákvörðun um og býr við.