157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:23]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Eins og allir hér inni þekkja er núverandi rekstrarumhverfi fjölmiðla afar bágborið. Ástæðan fyrir því er sérstaða ríkisfjölmiðilsins á markaði sem bæði nýtur hárra ríkisframlaga og getur aflað sér tekna á auglýsingamarkaði. Hér er til umfjöllunar þetta mál sem miðar að því að breyta núverandi leikreglum þar sem tveir fjölmiðlar eru teknir út fyrir sviga, fjölmiðlar Árvakurs og Sýnar. Ég ætla ekki að taka þátt í því að styðja þessa aðför sem hér á sér stað vegna þess að ásýnd málsins er afar slæm. Kemur þá til að fulltrúar stjórnarliða hafa í fjölmiðlum gagnrýnt akkúrat þessa fjölmiðla fyrir umfjöllun í garð þessarar ríkisstjórnar og hótað því að gera nákvæmlega það sem hér á sér stað í dag, að hefna sín.