157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:24]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið þá hafna ég, og við, þessari breytingartillögu. Hér birtist einmitt þessi aðför að landsfjölmiðlunum, héraðsfjölmiðlunum víðs vegar um land og kemur á óvart að hv. þm. Jón Gunnarsson greiði atkvæði með þessari tillögu. Þessi tillaga snýr einmitt að því að hlutfallslega fari meira hlutfall, að ríkið eigi styrkja endilega 25%, endurgreiða 25% af rekstrarkostnaði fjölmiðla. Það má ekki lækka það hlutfall og nýta það betur til að dreifa fjármagni um landið allt þar sem markaðsbresturinn er mestur. Um það snýst þessi breytingartillaga sem við greiðum atkvæði hér um, hv. þingmaður.

Virðulegi forseti. Það kom mér á óvart þegar ég las nefndarálitið sem fylgir breytingartillögunni að þrír þingmenn úr Reykjavík leggi fram þessa breytingartillögu og segja að þetta sé nauðsynleg forsenda og ef þessi breytingartillaga verði ekki samþykkt muni þau ekki geta stutt við þetta frumvarp um að styrkja einkarekna fjölmiðla út um allt land. Það kemur mér mjög mikið á óvart að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur geri það að forsendu að hlutfallið verði að verða 25%, (Forseti hringir.) það megi ekki vera 22% og það megi ekki dreifast um landið betur. Það sé nauðsynleg forsenda til að styðja við einkarekna fjölmiðla að við endurgreiðum 25% og það dreifist ekki betur um landið. Þetta kom mér á óvart.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutíminn þegar gert er grein fyrir atkvæði sínu er ein mínúta.)