157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:29]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Það er eins og Sjálfstæðisflokkurinn viti ekki alveg hvort hann er að koma eða fara í þessari umræðu. Annars vegar er talað gegn ríkisstyrkjum til fjölmiðla og hins vegar er talað eins og það sé heilög skylda ákveðinna fjölmiðla að fá svo og svo háa styrki. Það er annars vegar talað um að það eigi að beina styrkjum til landsbyggðarinnar en svo treysta þingmenn flokksins sér ekki til þess að styðja breytingu sem felur í sér nákvæmlega það, að beina styrkjunum í auknum mæli til héraðsfréttamiðla. Svo tekur steininn úr þegar talað er um einokun á fjölmiðlamarkaði og Ríkisútvarpið. Hvað gerði þessi ágæti flokkur öll þau ár sem hann var í ríkisstjórn til að bregðast við þeirri stöðu? Sannleikurinn er sá að það er fyrst núna sem það er alvöruvinna í gangi í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu við nákvæmlega þetta, að endurskoða stöðu RÚV á fjölmiðlamarkaði. Það þurfti að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr ríkisstjórn til að koma þeirri vinnu af stað, rétt eins og það þurfti að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr ríkisstjórn til að koma skikkan á ríkisreksturinn, rétt eins og það þurfti að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr ríkisstjórn til að tryggja öruggari landamæri, (Forseti hringir.) til að afnema 18 mánaða regluna í hælisleitendakerfinu, til að fara í vinnu (Forseti hringir.) við að breyta starfsmannalögum hjá hinu opinbera, afnema áminningarskylduna sem undanfara uppsagnar. Það þurfti að losna við Sjálfstæðisflokkinn til að ráðast í þessi verkefni og það sama gildir um stöðu RÚV á fjölmiðlamarkaði.