157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

jarðakaup erlendra aðila.

73. mál
[13:20]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Þetta er spurning sem mér kemur í sjálfu sér ekkert á óvart að komi úr þessum ranni. Stutta svarið er nú þannig að Framsóknarflokkurinn hefur horft til þess að orkumannvirki, t.d. eins og Landsvirkjun, séu í eigu þjóðarinnar og verði það sem eftir er. Varðandi uppbyggingu á vindorkuverum snýr þetta allt að því að við þurfum ákveðið jarðnæði til að hafa vindorkuverin á. Stefna Framsóknar er skýr hvað þetta varðar. Við horfum til þess að fara varlega af stað, byrjum með Landsvirkjun í fararbroddi hvað þetta varðar, sjáum hvernig það gengur, en fyrst og fremst snýr þetta að því að við sem þjóð ráðum yfir jarðnæðinu þar sem þessi orkuver verða sett upp til framtíðar. Hvort sem það eru að hluta til erlendir aðilar eða innlendir aðilar í einkageiranum sem koma að því í ókominni framtíð, sem ég veit ekki hvenær verður, þá tel ég að skynsamlegt væri að fara varlega hvað það varðar. Við þurfum alltaf að hafa það á hreinu þegar kemur að því að við ætlum að setja upp vindorkuver, t.d. fyrir austan, að það sé alveg ljóst að nýtingarréttur á landi sé í eigu Íslendinga. Síðan getum við leigt og framselt viðkomandi aðilum nýtingu af þessu landi (Forseti hringir.) en það verður að hafa takmörk á því hvernig það fer fram.