157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

raforkulög.

191. mál
[19:08]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir svarið. Mig langar aðeins, af því að við duttum inn í orkupakkann, að bæta við og hvetja hv. þingmann til að lesa þetta mál því að hér er líka nefnt, með leyfi forseta:

„Aðrar skipulagskröfur til rekstraraðila viðskiptavettvangs er að finna í svokölluðum hreinorkupakka Evrópusambandsins sem ekki hefur verið tekinn upp í EES-samninginn en upptaka í samninginn er til umfjöllunar í sameiginlegu EES-nefndinni.“

Næsti pakki er sem sagt klár, hv. þingmaður, og það mun krefjast þess af hv. þingmanni að taka afstöðu til næsta pakka frá Evrópusambandinu. Því langar mig aðeins, frú forseti, að nefna það sem aðrir ræðumenn hér hafa leyft sér að nefna, þó að það heyri ekki beint undir málið, þ.e. þessi svokölluðu aflátsbréf eða syndaaflausn, eins og mér finnst miklu eðlilegra að kalla þetta, vegna þess að syndin hefur verið gjörð, hún liggur fyrir og það er verið að kaupa sig frá syndinni. Þetta minnir á annars konar syndaaflausn liðinna tíma, hv. þingmaður, og okkur þykja þær skoplegar þegar við rifjum þær upp í dag. Ég hygg að til framtíðar verði rætt um okkur hér sem ræddum um aflátsbréf og syndaaflausnir með svipuðum hætti. Eins og komið var inn á í ræðu áðan erum við nú farin að krefjast þess að fyrirtæki sem hafa jafnvel ekki aðgang að annarri orku en hreinni kaupi sérstaka stimplun um að þau séu með hreina orku, sem er eiginlega miklu verra. Þó að við Íslendingar séum að græða á því peninga þá erum við að selja syndaaflausn út í heim og þar með er viðskiptavinum og rekstraraðilum erlendis gert það upp að allt sé í lagi, þeir séu með hreina orku ef pappírarnir hljóma upp á að fyrir það hafi verið greitt. Þykir hv. þingmanni eðlilegt að ljúga með þessum hætti að evrópskum neytendum?