Störf þingsins.
Frú forseti. Umfjöllun og umræða um veðmálastarfsemi á netinu hefur blossað upp á síðustu dögum, sem er vel. Það er áhugavert að í gegnum tíðina höfum við ákveðið að nota „strútshöfuðið í sandinn“-aðferðina og reynt að gangast ekki við því að þetta sé eitthvað sem er til. Á sama tíma og við höfum ekki gengist við þessu hefur þetta aukist svo svakalega að Ísland er næstmesta spilaþjóð í Evrópu á eftir Írlandi og þessar tvær þjóðir skera sig alveg úr. Það var umræða hér í þinginu um daginn um veðmálastarfsemi á netinu sem var jákvæð frá Sjálfstæðisflokknum og fleirum og Viðreisn, en kannski neikvæðari frá Samfylkingunni.
Síðan barst okkur skemmtilegur haukur í horni í fréttum Sýnar í gær þegar hæstv. dómsmálaráðherra talaði um jarðtengingu og að hún vildi fara að leyfa þetta. Það er auðvitað eitthvað sem þarf að fara að gera, a.m.k. að taka einhverja alvöruumræðu um. Það kom fram í skýrslu Viðskiptaráðs fyrir ekki margt löngu að við værum að tala um 20 milljarða sem væri verið að spila fyrir og færu úr landi. Þegar erlend kreditkort eru tekin inn í þetta erum við að tala um 36 milljarða sem við erum ekki að nýta heldur gufa bara upp eitthvert í tómið án þess að við getum notað þá bæði í skattfé og forvarnir. Það er mikið talað um forvarnir og það er eins og þær séu teknar úr lausu lofti. Það er alltaf verið að tala við mig, og í mínum fyrri störfum, um einhverjar forvarnir en ég hef aldrei séð peningana sem fara beint í forvarnir og hvernig við ætlum að nota þetta allt saman til þess að búa til einhvern heildarpakka um þetta.
Við erum í dauðafæri á skapa okkar eigin ramma. Við sjáum að á meðan við höfum ekki gengist við þessu eru 600 erlendar veðmálasíður að stunda viðskipti hér á landi án þess að við gerum nokkuð í því. Við getum frekar tekið þetta inn og skapað okkar eigin ramma. Ef allir vilja koma í partíið okkar hljótum við að geta sett reglurnar um hvað við viljum gera, hvernig við viljum gera það, hverjir megi spila, hversu hart þetta má vera og ekki síst hvað við gerum við auglýsingarnar í þessu. Það er alveg ljóst (Forseti hringir.) að við getum ekki lengur ekki gengist við þessu, því þetta er hérna. Ég óska hæstv. dómsmálaráðherra innilega góðs gengis í að reyna að koma þessu í gegnum ríkisstjórn ef hún ætlar sér það.