157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[17:53]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Við ræðum breytingar á húsaleigulögum, breytingar sem ég þekki býsna vel í kjölfarið á starfshópi sem var settur á laggirnar af forsætisráðherra í tengslum við húsnæðismál árið 2022. Þá var sá sem hér stendur innviðaráðherra og setti á laggirnar starfshóp um leiguhúsnæði sem var skipaður öllum hagaðilum, þar á meðal aðilum vinnumarkaðarins, fulltrúum frá ASÍ og Samtökum atvinnulífsins og sameiginlegum fulltrúa frá BHM, BSRB og KÍ, ef ég man rétt. Sá starfshópur skilaði af sér skýrslu sem síðan varð frumvarp sem fór fyrir þingið og í því frumvarpi var m.a. ákvæði um skráningarskyldu sem hér er komið aftur. Það er ástæða fyrir því að þetta frumvarp var með skráningarskylduna og það er vegna þess að starfshópurinn var sammála um að það væri mikilvægt.

Það eru óljósar hugmyndir uppi um hversu stór leigumarkaðurinn er og það er auðvitað mjög flókið að fjalla um eitthvað sem við vitum ekki nægilega mikið um. Það hafa áður komið fram þær upplýsingar, og ég held að það komi fram í greinargerð með frumvarpinu, að 16% væru á leigumarkaði en nú eru vísbendingar um að það séu 28%. Það er talsverður munur þar á. Það hefur líka verið bent á að þegar um einkaréttarlega samninga milli einstaklinga sé að ræða — og einstaklingar eru meginparturinn af þeim sem leigja út íbúðir, 60%–65%, hver veit en það er einhver slík stærðargráða — hafi í fyrra 60% leigusamninga að mati HMS verið skráðir, sem er áhugavert. Með öðrum orðum skráði stór hluti þeirra einstaklinga sem eru að leigja út húsnæði inn í skráningarformið en ekki allir. Ef allir myndu skrá, og ég ætla að taka undir með því sem kemur fram í greinargerðinni sem er meira og minna frá þessum starfshópi frá 2022, ef almenn skráning leigusamninga væri í leiguskrá húsnæðisgrunns HMS myndu fást áreiðanlegar og heildstæðar upplýsingar um ólíka hluta hans sem nú skortir, upplýsingar t.d. um stærð leigumarkaðarins og einstaka hluta hans, svo sem eftir leigusölum og tegund, með tilliti til fjölda íbúða og fjölda íbúa, leiguverð og þróun þess eftir leigusölum, svæðum, tegund húsnæðis, stærð. Síðan eru talin upp nokkur önnur atriði sem myndu hjálpa til við að fá þessa heildarmynd yfir markaðinn.

Það er hins vegar alveg rétt sem hér hefur verið gagnrýnt að skráningarskylda ein og sér muni ekki fjölga leiguíbúðum og heldur ekki breytingin á núverandi löggjöf þar sem hugmyndin var að 12 mánaða samningar myndu ekki taka vísitöluhækkun. Þá gerist það mjög oft, eins og hefur verið rætt í nokkrum andsvörum, að menn finna glufur á því kerfi. Þannig var t.d. mörgum samningum breytt í 13 mánaða samninga sem voru fyrir breytinguna 0,6% af öllum samningum en urðu 46% þeirra á mjög stuttum tíma. Með öðrum orðum leita menn leiða til að finna glufur í kerfinu. En hver er tilgangurinn við að koma í veg fyrir að skammtímasamningar, 12 mánaða eða styttri, taki vísitöluhækkun í hverjum mánuði? Það er auðvitað fyrirsjáanleikinn. Þú gerir leigusamning til eins árs, 12 mánaða, og verið er að gera það í 2. gr. þessa frumvarps, með það fyrir augum að þú vitir hvað þú ert að fara að greiða allan tímann sem ég held að hljóti að vera jákvætt. Það er líka alveg rétt sem hér hefur verið gagnrýnt að það muni hugsanlega hafa þau áhrif að leiguverðið verði örlítið hærra í upphafi en þú veist þá allan tímann, þessa 12 mánuði, hver sú leiga er og hún tekur ekki breytingum.

Það er eitt í þessu sem hefur lítið verið rætt í dag sem er að bæði þessi atriði, þ.e. skráningarskyldan og að það sé bannað að vísitölutryggja hækkun fyrstu 12 mánuðina, þessar tvær breytur munu gera það að verkum annars vegar að fá þessa heildaryfirsýn yfir leigumarkaðinn, fá alla leigusamninga inn, og hins vegar að þeir breytist ekki mánaðarlega eins og neysluvísitalan breytist og það hefur þá áhrif við útreikning á vísitölu leiguverðs, sem er stór liður í verðtryggingunni, í vísitölu húsnæðiskostnaðar og ýkir þær sveiflur. Þess vegna er miklu betra ef þú ert með 12 mánaða samning að hann sé ekki vísitölutryggður. Þó að hann sé örlítið hærri í upphafi mun hann ekki halda áfram að búa til þessa sjálfvirku hækkun sem við erum búin að búa til í verðtryggingarkerfinu. Á sama hátt, ef þú ert kominn með allan hópinn inn í leigumyndina, alla þá sem eru á leigumarkaði, hefur því verið haldið fram m.a. að hluti af þessum einstaklingsútleiguíbúðum sé milli tengdra aðila og hugsanlega á lægri kjörum og það hefur líka áhrif inn í þá vísitölu sem er verið að reyna að meta með kostnaði húsnæðis inn í vísitölu húsnæðisverðs sem fer beint inn í verðtrygginguna. Hvort tveggja mun því hjálpa okkur að fá annars vegar betri mynd, skýrari, á leigumarkaðinn og þar af leiðandi til hvaða úrræða þurfi að grípa og hins vegar mun þetta hafa jákvæð áhrif til þess að milda stökkbreytingar, eitthvert verðbólguskot frá einum mánuði til annars og dreifa því yfir lengri tíma.

Þetta mun því vera hagfellt fyrir íslenskt efnahagslíf, jákvætt, og þess vegna hef ég alla tíð verið þeirrar skoðunar að þetta sé skynsamleg leið. Starfshópurinn sem ég talaði um áðan taldi að þetta væri nauðsynlegt en það fór síðan þannig í þinginu að það náðist ekki samstaða í þáverandi ríkisstjórn. Það hefur komið í ljós hverjir voru á móti því. Þeir hafa farið hér upp í hópum í dag, Sjálfstæðismenn, og gagnrýnt þetta. Árið eftir kom ég með þessa breytingu aftur inn í þingið vegna þess að eftir samtal við þennan starfshóp var niðurstaðan að það þyrfti að gera þessar breytingar. Ég er því glaður að sjá að þessi breyting er komin hér fram og við í Framsókn styðjum hana, enda er hv. þm. Ingibjörg Isaksen í velferðarnefnd og er hluti af þeim sem skrifa upp á meirihlutaálitið. Ég vildi bara koma því hér á framfæri. Við teljum að þetta sé framfaraskref, jákvætt og muni skipta máli, ekki bara fyrir þessa stóru heildarmynd að fá yfirsýn sem í dag er það óviss að menn vita ekki stærðargráðuna, hvort það eru 16% eða 28% á leigumarkaði, sem er svakalegt. Þar fyrir utan held ég að þetta geti haft jákvæð áhrif á útreikning vísitölu húsnæðiskostnaðar í vísitölu neysluverðs sem því miður stýrir lífi okkar dálítið mikið þessa dagana. Ríkisstjórnin er ekki að gera nóg í því að ná niður verðbólgunni þó að þau væru kosin til þess og byðu fram sleggjur til að berja niður verðbólguna því að staðreyndin er sú að verðbólgan fer hækkandi og mun fara hækkandi, því miður, næstu mánuði. Þau áform sem ríkisstjórnin hefur verið uppi með í húsnæðispakkanum voru kynnt til sögunnar í síðustu viku, vissulega með þeim fyrirvara að þetta væri bara fyrsti pakkinn sem var býsna gott hjá þeim vegna þess að það er ekkert í þessum pakka sem mun breyta ástandinu hér og nú. Margt jákvætt, byggt á vinnu þessa starfshóps sem ég tiltók áðan þar sem við breyttum verulega umhverfinu á leigumarkaði, leigjendum til góða en gengum hins vegar ekki of langt til að fæla leigusala frá. En það er líka rétt sem var gagnrýnt þar að sú aðgerð framleiddi ekki fleiri leiguíbúðir, hún bjó bara til betri umgjörð og þetta frumvarp er að fara að gera það líka.

Það sem þarf að gera er auðvitað að auka framboð lóða, það þarf að ná niður byggingarkostnaði, það þarf að lækka þann þröskuld sem ungt fólk hefur inn á markaðinn. Það sem Seðlabankinn gerði núna í tengslum við þennan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar — eða kannski meira í tengslum við það uppnám sem er á fasteignalánamarkaði vegna hæstaréttardómsins um daginn þar sem bankarnir hafa kippt að sér höndum og vita ekki alveg hvernig þeir eiga að umgangast fasteignalán akkúrat í augnablikinu og hættan er sú ef ekki verður brugðist hratt við á þeim vettvangi að við séum að horfa upp á nokkurra mánaða stöðnun, stopp á þeim markaði með áhrifum sem geta varað miklu lengur ef það fer að hafa áhrif á verktakana sem byggja þá ekki íbúðir. Seðlabankinn breytti sem sagt þessu viðmiði um að ungt fólk, fyrstu kaupendur, geti farið upp í 90% en þeir breyttu ekki hinu viðmiðinu sem er kannski mikilvægara, þ.e. greiðslubyrðarviðmiðinu. Það hefði þurft að vera hluti af þessari breytingu og vonandi verður það á næstu vikum vegna þess að ég held að það sé algerlega augljóst að sú breyting þarf að eiga sér stað af hálfu Seðlabankans.

Hvernig ríkisstjórnin hyggst síðan koma þessum vaxtaviðmiðunum fram er aðeins óljóst enn þá. Ég átti fyrr í dag samtal við hæstv. forsætisráðherra um hvernig ríkisstjórnin hygðist gera þetta og hvernig það samtal og samráð og samstarf eigi við Seðlabankann, sem er jú sjálfstæður í sínum ákvörðunum. Mér finnst mjög mikilvægt að það komi fram sem fyrst og varð svolítið undrandi yfir því að ríkisstjórnin væri ekki búin að teikna upp ólíkar sviðsmyndir fyrir þennan hæstaréttardóm og hvernig þyrfti að bregðast við. Við skulum vona að menn setji kraft í það á næstu dögum til að sýna fram á hvernig það sé hægt. Ég held að það klóri sér margir í kollinum yfir því hvernig þeir eigi að vinna með þessi vaxtaviðmið, en ef þau verða niðurstaðan þá getur það hjálpað til sem bráðaaðgerð inn á frosinn fasteignalánamarkað. Ef ríkisstjórnin er tilbúin að fara að gefa út fimm ára skuldabréf þá spyr ég um þingsályktun okkar í Framsókn um löng óverðtryggð lán á föstum vöxtum til lengri tíma, tíu ára, 20 ára, þar sem fyrirsjáanleikinn væri miklu lengri, af hverju það sé þá ekki hægt. Ef ríkisstjórnin treystir sér til að fara í fimm ára skuldabréfaútgáfu þá skil ég ekki hæstv. fjármálaráðherra sem sagði að ríkið mætti alls ekki koma nálægt þessu. Ef ríkið er svo að fara að gera nákvæmlega það þá held ég að þau ættu að vera tilbúin að ganga enn lengra í því skyni að búa til fyrirsjáanleika á þessum fasteignalánamarkaði sem ég held að allir fasteignalántakar kalli eftir, ekki síst unga fólkið okkar sem er þjakað af allt of hárri verðbólgu og allt of háum vöxtum. Það hlýtur að vera sameiginlegt verkefni okkar allra í þessum sal að reyna að finna einhverjar leiðir til þess. Við höfum verið að leggja fram leiðir. Ríkisstjórnin hefur slegið á þá putta en svo virðist vera sem þau séu tilbúin að fara að opna einhverjar glufur og það verður þá áhugavert að sjá hvort þau séu ekki tilbúin að fara alla leið til að skoða það mál.

Það mál er svo sem ekki þessu tengt en það er hins vegar ekki hægt að fjalla hér um leigumarkaðinn öðruvísi en að benda á hið augljósa, að það þarf meira framboð af lóðum, ódýrum lóðum, til að hægt sé að byggja upp leigumarkað. En það þarf líka að tryggja að séreignarstefnan okkar, þar sem um og yfir 80% landsmanna búa í eigin húsnæði og ætli það séu ekki um 90% sem vilja búa í eigin húsnæði, þá er eftirspurn eftir því að gera þetta enn betur og með tryggari hætti. Það er verkefni ríkisstjórnarinnar ef hún ætlar að hafa áhrif til styttri tíma. Allt hitt eru jákvæðar leiðir en breyta voða litlu fyrir þann sem er að kaupa íbúð eða leigja íbúð í næstu viku.