157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.

12. mál
[15:02]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir framsöguna. Þetta er áhugavert mál og sannarlega mikilvægt að styðja nýbúa þessa lands og sér í lagi börnin að ná tökum á tungumálinu og menningu hér á þessu landi. Ég velti því fyrir mér í þessu samhengi hvort hv. þingmaður gæti aðeins útskýrt betur hvernig hún sér fyrir sér hlut landsbyggðarinnar í þessu máli og barna sem þar búa og geta ekki sótt kennslu til höfuðborgarsvæðisins og eins það sem varðar aldur barna. Sér hv. þingmaður fyrir sér að þetta sé fyrir allan aldur barna frá leikskólastigi og alveg upp á framhaldsskólastig? Eða hver er hugsunin þar? Ég hef sjálf reynslu af því að starfa í skóla þar sem í áraraðir og jafnvel í tugi ára hefur tekist mjög vel að taka á móti börnum af erlendum uppruna með nokkurs konar móttökudeild eða alla vega svona markvissri þjónustu og stuðningi við þessi börn. Það hefur gengið rosalega vel og ég velti fyrir mér kostum og göllum: Hvað er það við þessa hugmynd hv. þingmanns sem er betur til þess fallin að mæta þörfum þessara barna heldur en einmitt að styðja frekar við skólana sjálfa og að efla þennan hluta skólastarfsins? Ef markmiðið er að samræma verklag um móttöku og kennslu og þjónustu til þessara barna, hverjir eru þá kostir og gallar við það að gera það í þessari sérhæfðri einingu frekar en að efla þetta inni í hverjum skóla fyrir sig?