þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Forseti. Ég sem skólamanneskja tel mig eiginlega skylduga til að koma upp og benda á að börn sem ekki tala íslensku eru ekki mállaus. Þau eru sannarlega með sitt tungumál og sitt móðurmál og eru þar af leiðandi ekki mállaus. Við erum mjög ströng á því í mínu starfsumhverfi að ræða ekki um börn sem ekki tala sama tungumál og við sem mállaus, bara svo það sé sagt. Þetta er bara spurning um virðingu í orðræðu. Nú þekki ég best til í Reykjavík, og í Austurbæjarskóla er starfrækt móttökudeild eða móttökuskóli fyrir skóla á miðborgarsvæðinu. Þar safnast börn og eru í hálfan dag í marga mánuði í stífri íslenskukennslu. Þau koma svo í sína móttökuskóla eftir hádegi og eru þar með bekkjarfélögum og skólafélögum og síðan í framhaldi af því í félagsmiðstöð. Ég hef sagt það áður og ætla að árétta það núna að börn eru í skóla 21% af vökutíma en til þess að ná góðum tökum á tungumáli þurfum við að vera 65% af vökutíma okkar í málumhverfi. Vissulega þarf að gera betur í skólanum og við getum alltaf gert betur þar, en við þurfum líka að huga að fleiri leiðum. Ég heyrði áðan að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir talaði um félagsstarf og íþróttir. Ég vil líka sérstaklega árétta mikilvægi félagsmiðstöðvarinnar. Hún er frábær staður fyrir börn, þetta er óformlegur staður með góðu fólki sem er sérstaklega þjálfað í að vinna með börnum og ungmennum, fyrir utan forvarnastarfið. (Forseti hringir.) Ég er ekki með eiginlega spurningu, ég vildi bara árétta þetta með málleysið.