fánatími.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu þar sem Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að endurskoða fánatíma þannig að heimilt sé að draga þjóðfána Íslendinga á stöng eftir miðnætti og fyrir klukkan sjö að morgni á sumrin. Skal endurskoðuninni vera lokið fyrir 1. maí 2026.
Íslenski fáninn er þjóðfáni Íslendinga. Hann er sameiginlegt tákn allrar þjóðarinnar, allra Íslendinga óháð trú, uppruna eða stjórnmálaskoðunum. Íslenski fáninn er tákn frelsis, samstöðu og sögu þjóðarinnar og endurspeglar náttúruöflin sem við búum við; fjallablámann, hafið, ís og eld. Þjóðfáninn er tákn þess sem sameinar þjóðina alla en ekki þess sem skilur okkur að.
Forseti. Aðdragandi þessa máls er sá að ágætur atvinnurekandi hafði samband við alla þingmenn í kjölfar þess að hann skrifaði blaðagrein þar sem hann hvatti þingheim til þess að gera einhverjar ráðstafanir þannig að fólk gæti nýtt þjóðfánann betur og flaggað. Vísaði hann þar sérstaklega til sumartímans þegar bjart er allan sólarhringinn og að það ætti að vera auðvelt að gera breytingar til þess að hann megi njóta sín betur yfir björtustu mánuðina. Hann endurspeglaði þar umræðu sem oft hefur komið upp á Íslandi um að við séum ekki alveg nógu dugleg að nýta þennan fallega fána sem við eigum og mér fannst tilvalið að hlaupa af stað og gera það sem ég get til að kippa þessu í liðinn. Afraksturinn er þessi þingsályktunartillaga.
Í forsetaúrskurði um fánadaga og fánatíma er mælt fyrir um að fána skuli eigi draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og að jafnaði skuli hann eigi uppi vera lengur en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis. Með tillögu þessari er ráðherra falið að breyta reglum um fánatíma þannig að heimilt verði að flagga allan sólarhringinn björtustu daga ársins. Ýmist væri hægt að miða við ákveðnar dagsetningar, t.d. 1. maí og 1. ágúst, eða þegar almannarökkur er orðinn dimmasti tími sólarhringsins. En frá því um miðjan apríl fram undir ágústlok er dimmasti tími sólarhringsins nefndur almannarökkur. Þá fer sólmiðja mest 6° undir sjónbaug og verður ekki nótt í skilningi stjörnufræði. Frá því um miðjan maí og fram undir júlílok fer sól vart niður fyrir sjóndeildarhring og er þá bjart allan sólarhringinn.
Forseti. Ástæðan fyrir því að ég, ásamt öðrum hv. þingmönnum, er að leggja þetta fram sem þingsályktunartillögu frekar en að leggja þessa breytingu til með lagafrumvarpi er sú að samkvæmt gildandi lögum um íslenska þjóðfánann er fánatíminn ákveðinn með reglugerð. Áður var það forsetaúrskurður. Það er mildari leið en að festa þetta í lög og gefur rými fyrir hæstv. forsætisráðherra á hverjum tíma fyrir sig til að eiga samráð við þjóðina um fánatíma eftir því sem við á.
Í þingsályktunartillögunni er einnig hvatt til þess að samhliða þessari breytingu verði athugað hvort ástæða sé til að skerpa á ákvæðum um umgengni við þjóðfánann og viðhald hans, eins og að hann skuli ávallt vera heill, hreinn og smekklegur, í samræmi við þá virðingu sem honum ber að sýna.
Þá er einnig vert að benda á það að núverandi fánatími og í raun frekari reglur um umgengni við íslenska þjóðfánann er enn að finna í forsetaúrskurði frá 1991 en það voru gerðar breytingar á lögum 1998 þar sem ráðherra var falið að setja reglugerð en hún hefur ekki verið sett. Það er þannig alveg tilefni til að skoða það nánar hvort það sé kominn tími á að setja þessa reglugerð og þannig fella úr gildi forsetaúrskurð nr. 5/1991.
Virðulegi forseti. Með því að heimila að þjóðfáninn verði dreginn á stöng allan sólarhringinn á sumrin, þegar Ísland skartar sínu fegursta undir nætursólinni, er fánanum, í orðsins fyllstu merkingu, lyft hátt á loft sem tákni samkenndar og samheldni þjóðarinnar.
Með mér flytja þessa þingsályktunartillögu hv. þingmenn Arna Lára Jónsdóttir, Sverrir Bergmann Magnússon, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Dagbjört Hákonardóttir, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir, Dagur B. Eggertsson, öll úr Samfylkingunni, María Rut Kristinsdóttir, Ingvar Þóroddsson, Guðbrandur Einarsson, Eiríkur Björn Björgvinsson, Grímur Grímsson, öll úr Viðreisn, Sigurjón Þórðarson og Jónína Björk Óskarsdóttir úr Flokki fólksins, Karl Gauti Hjaltason úr Miðflokknum og Halla Hrund Logadóttir úr Framsóknarflokknum. — Ég hef lokið máli mínu.