157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Í síðustu viku kynnti ríkisstjórnin fyrsta húsnæðispakkann sinn sem var mikilvægt, tímabært og tók á málum sem lengi hefur þurft að taka á, m.a. hlutdeildarlánum, m.a. því að efla stofnanakerfið, vegna þess að við vitum að óhagnaðardrifin félög eru að bjóða húsaleigu fyrir venjulegt vinnandi fólk sem er 65% af markaðsleigu, öruggt húsnæði fyrir risastóra hópa sem hafa ekki fengið skjól á húsnæðismarkaði undanfarin ár. Þarna eru líka stigin stór skref og það þarf. En stóra málið er þó að bregðast við stöðunni í lána- og vaxtamálum, ná vöxtunum niður en líka höggva á þá óvissu sem leiðir af niðurstöðu nýlegs dóms Hæstaréttar. Það er ríkisstjórnin að gera. En þetta er fyrsti pakkinn og í þeim næsta, eins og fram kom í kynningu ríkisstjórnarinnar, verður horft á lóðaframboðið sem er nú þegar verulegt af hálfu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu sem sendu frá sér heildstæðar húsnæðisáætlanir síðastliðið vor. Til viðbótar kemur núna Úlfarsárdalurinn sem var hluti af þessum pakka og í næsta ríkislóðir, sem verið er að kortleggja hverja og eina, þannig að ríkið geti nú loksins komið með sveitarfélögunum í það að tryggja nægilegt framboð af vel staðsettum lóðum svo að fólk fái öruggt þak yfir höfuðið, eins og kallað er eftir, eins og þörf er á og eins og sannarlega er stefna þessarar ríkisstjórnar.