stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir kynninguna hér rétt áðan og þessi drög eða tillögu til þingsályktunar. Ég tek undir með þeim sem hafa sagt að þau taki þessa vinnu alvarlega og vilji vera ábyrg. Við erum það líka í Miðflokknum. Þess vegna sögðum við okkur frá þessari vinnu þegar við töldum að ekki yrði lengra komist í að laga innihald skýrslunnar þannig að hún gæti orðið þessi grunnur að stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum. Hins vegar er þetta bara skýrsla og lífið heldur áfram.
Mig langar að spyrja utanríkisráðherra um tiltekin atriði í þingsályktuninni, ef hæstv. utanríkisráðherra er að hlusta. (Utanrrh.: Já, ég er að hlusta. )— Frábært. Ég sé hér fyrst að þessi stefna eigi aðeins að taka til hernaðarlegra áhættuþátta. Mér finnst að stefna Íslands í öryggis- og varnarmálum þurfi að taka á hlutunum heildstætt. Það að þetta eigi bara að taka til hernaðarlegra áhættuþátta finnst mér ekki nógu gott.
Síðan vil ég spyrja hæstv. utanríkisráðherra út í lið 4 um þróun og eflingu á varnar- og öryggissamvinnu við samstarfsríki Íslands innan Evrópu, Evrópusambandsins og Kanada: Hvað er átt við varðandi að þróa og efla aukið samstarf við Evrópusambandið? Í lið 5 er síðan talað um auknar og stigvaxandi fjárveitingar. Er ekki nóg að það standi bara auknar, þarf að standa stigvaxandi? (Forseti hringir.) Ég spyr mig að því hvort þetta sé ekki í raun og veru sami hluturinn. Ég held áfram með spurningarnar þegar ég kem hér upp aftur.