samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Þrátt fyrir stóryrði hæstv. félagsmálaráðherra er auðvitað ábyrgðin hjá þinginu í þessu máli núna og mikilvægt að menn hugsi sinn gang í þessum efnum. Það er ekki að tilefnislausu sem sveitarfélögin hafa af þessu áhyggjur og senda inn sínar athugasemdir. Eins og fram hefur komið í þessari umræðu þá er ferlið varðandi kostnaðarmat lögbundið. Það er svo sem ekki í fyrsta skipti sem þingmenn þessarar hæstv. ríkisstjórnar í málsmeðferð á þinginu hunsa hreinlega lögin þegar kemur að þessu þrátt fyrir ítarlegt ákall sveitarfélaga víðs vegar um land. Nú hafa Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sent frá sér ályktun sem okkur ber að hlusta á. Önnur sveitarfélög munu örugglega fylgja í kjölfarið. Þegar við innleiddum notendastýrða persónulega aðstoð á sínum tíma var þetta reiknað allt saman út af þeim sem best þekktu til á þeim tíma, fyrir hönd sveitarfélaganna og fyrir hönd ríkisins. Áætlaður kostnaður við það á sínum tíma var rúmir 2 milljarðar, (Forseti hringir.) ef ég man rétt, einhvers staðar á milli 2 og 3 milljarðar. Ætli sú tala sé ekki komin nær 20 milljörðum í dag á ári, á hverju ári. Hún var alla vega fljót að fara upp í 12–14 milljarða, man ég, þannig að (Forseti hringir.) það er ekki að tilefnislausu sem sveitarfélögin eru að vekja á þessu athygli og skora á okkur að vanda til vinnubragða.
(Forseti (ÞSv): Ræðutíminn er ein mínúta í umræðu um fundarstjórn forseta.)