157. löggjafarþing — 31. fundur,  11. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[14:02]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegur forseti. Sauðfjárræktin, búgrein og matarkista Íslendinga um aldaraðir, stendur nú frammi fyrir miklum vanda. Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands hefur sauðfé ekki verið færra á landinu í yfir 160 ár. Á áttunda áratugnum taldi íslenski fjárstofninn um 900.000 fjár en í dag er stofninn um þriðjungur þeirrar tölu. Á aðeins tíu árum hefur hann dregist saman um nærri fjórðung, úr tæplega 470.000 fjár árið 2015 í 350.000 fjár í dag. Ef þessi uggvænlega þróun heldur áfram á þeim hraða og horfur eru á gæti fækkað í stofninum í 250.000–270.000 fjár á næstu tíu árum. Innan 20 ára gæti fjöldinn verið orðinn innan við helmingur þess sem hann er í dag.

Hér er ekki um náttúrulega hnignun að ræða heldur afleiðingar pólitískra ákvarðana. Sauðfjárbændur á Íslandi hafa of lengi búið við óstöðugt afurðaverð, vaxandi kostnað og skertar stuðningsgreiðslur. Ungt fólk sér ekki framtíð í greininni og nýliðun er því lítil. Við erum því að horfa upp á það að smærri bú leggist af eitt af öðru og heilu samfélögin veikist um leið. Það er ekki hægt að ætlast til að sauðfjárbændur tryggi fæðuöryggi okkar, ef þeir geta ekki lifað af búskapnum. Íslenska sauðkindin býr að því að vera gríðarlega harðger skepna að upplagi. Hún getur þraukað heilu veturna í óbyggðum og komið engu að síður þokkalega vel haldin til byggða að vori. Komi að því að fæðuöryggi okkar verði stefnt í hættu þá trónir sauðkindin á toppnum þegar kemur að aðgangi að heilnæmri fæðu. Stjórnvöld þurfa því að tryggja bændum sanngjarnt afurðaverð, nýliðunarstyrki og viðurkenna fjárbúskap sem menningararf og samfélagslegt framlag.

Virðulegur forseti. Þetta snýst um framtíð byggða, matvælaöryggi og fólkið í landinu.(Gripið fram í: Heyr, heyr.)